139. löggjafarþing — 135. fundur,  30. maí 2011.

stjórn fiskveiða.

826. mál
[18:36]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurningarnar. Nú háttar svo til að við hv. þingmaður sátum saman í sáttanefndinni og þakka ég honum fyrir samstarfið þar sem var mjög gott eins og norðanmanna er siður, þeir haga sér alltaf vel þegar þeir leita sátta.

Til að svara þessum spurningum má nota líkingu af skipi af því að hv. þingmaður er skipstjóri. Skrokkurinn er ágætur, skrokkurinn er kannski nýtilegur á þessu skipi, en maður verður að hafa vél, mannskap og veiðarfæri sem gagnast. Það er það sem vantar í frumvarpið. Stóra myndin er ekki algalin, stóra myndin byggir á ákveðnum hugmyndum sem við ræddum í sáttanefndinni svokölluðu. Þegar allt er hins vegar sett í samhengi gengur málið einfaldlega ekki upp. 5. og 6. gr., svo ég nefni þær, frú forseti, (Forseti hringir.) geta ekki klárast með þessu frumvarpi því að þær eru svo nátengdar hinu málinu.