139. löggjafarþing — 135. fundur,  30. maí 2011.

stjórn fiskveiða.

826. mál
[19:29]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. þm. Helgi Hjörvar kemur inn á hvað veiðigjaldið eigi að vera hátt. Veiðigjaldið er eitt af því sem menn náðu sátt um í sáttanefndinni, að hér skyldi verða veiðigjald, en það átti algerlega eftir að útfæra það. Það væri ágætt að biðja um hagfræðilega úttekt á því áður en menn slá fram einhverjum tölum ábyrgðarlaust eins og er taktur ríkisstjórnarflokkanna, án nokkurra röksemda. Þetta er eins og að setja fingurinn upp í loftið og segja: Já, við höfum þetta bara þessa upphæð. Af hverju höfðum við þetta ekki 10 milljarða eða 15 milljarða? Af hverju datt okkur það ekki í hug?

Ég ætla ekki að leggja mat á það hér og nú hvað þessi upphæð á að vera há. Ég vil skoða hvar skattlagningin getur legið. Það er mikilvægt að við skoðum það.

Málflutningur hv. þingmanns var náttúrlega á sömu nótum og hér fyrr í kvöld. Hann hrósar ekki beint málflutningi okkar og segir okkur að tala út fram á nótt. Virðingin sem stjórnarflokkarnir sýna okkur í umræðunni um þetta mikilvæga mál er ekki mikil eða hæstv. ríkisstjórn þegar menn eru ekki viðstaddir og forustumenn flokkanna innan sjávarútvegsmálaflokksins, varaformaður sjávarútvegsnefndar og aðrir í nefndinni, eru ekki einu sinni á mælendaskrá, ætla ekki einu sinni að tjá sig um þessi frumvörp. Eins og ég sagði áðan er svo mikil óeining enn þar innan dyra að menn hefðu átt að hafa vit á því að setjast niður aftur og láta tímann líða vegna þess að við erum með hagkvæmasta sjávarútveg í heimi. Það liggur ekkert á að breyta honum strax.

Hv. þingmaður sagði að Sjálfstæðisflokkurinn hefði ekki viljað breyta neinu undanfarinn áratug. Það er ekki rétt. Sjálfstæðisflokkurinn setti á fót þrjár nefndir síðastliðinn áratug til að vinna að sátt um þessi mál. Þar urðu menn sáttir um þetta auðlindagjald og fara þá leið að gjaldið næði (Forseti hringir.) yfir fleiri auðlindir en bara sjávarútveginn. En út úr því var jafnan snúið af þeim flokkum sem koma nú fram í algeru (Forseti hringir.) ábyrgðarleysi með þær hugmyndir sem liggja fyrir.