139. löggjafarþing — 135. fundur,  30. maí 2011.

stjórn fiskveiða.

826. mál
[19:32]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég fagna því að hv. þingmaður er greinilega tilbúinn að ganga miklu lengra í veiðigjaldi en gert er ráð fyrir. Hér er gert ráð fyrir því að þegar afkoman í greininni er 45 milljarða hagnaður sé veiðigjaldið rétt um 6 milljarðar en hv. þingmaður talaði um að það mætti út af fyrir sig vera 10 eða 15 milljarðar ef ég skildi hann rétt. Kannski er full ástæða til að setjast yfir hugmyndir þingmannsins í nefndarstörfum.

En ég skil satt að segja ekki hugmyndir þingmannsins. Eigum við að setja málið enn einu sinni í nefnd? Nei. Það er búið að vera í 27 ár í nefndum Sjálfstæðisflokksins. Við skulum bara ljúka málinu og koma á sæmilegum friði um starfsskilyrði í greininni. Samningarnir eru til 15 ára. Yfir hverju eru menn að kvarta? Lengstu nýtingarsamningar í heimi eru samningar til 18 ára í Noregi. Lifa ekki útgerðarmenn í Noregi ágætlega (Gripið fram í.) á því að gera út á samningum til 18 ára?