139. löggjafarþing — 136. fundur, 31. maí 2011.
varamaður tekur þingsæti.
Borist hefur bréf frá þingflokksformanni Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs um að 2. þm. Reykv. n., Katrín Jakobsdóttir, sé í fæðingarorlofi. Í dag tekur sæti á Alþingi varamaður hennar, Auður Lilja Erlingsdóttir stjórnmálafræðingur. Hún hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa á ný.
Forseti vill geta þess að hæstv. umhverfisráðherra er staðgengill menntamálaráðherra meðan á orlofinu stendur.