störf þingsins.
Virðulegi forseti. Ég leyfi mér að fullyrða að þessi tillaga sem hér var rædd er nákvæmlega til heimabrúks í Vinstri grænum. Hv. þm. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir sagði að þetta væri ekki bara eitthvað sem þingheimur hér þyrfti að ræða, heldur þyrftum við að ræða þetta á heimsvísu. Af hverju í ósköpunum komu þá ekki Vinstri grænir þessari stefnu sinni á framfæri þar sem hún hefði getað vakið athygli á heimsvísu, í Norður-Atlantshafsráði Atlantshafsbandalagsins þar sem Vinstri grænum gafst um daginn það einstaka sögulega tækifæri að koma stefnu sinni á framfæri og koma henni til áhrifa á heimsvísu? Nei, þá svaraði hæstv. fjármálaráðherra, þá svöruðu ráðherrarnir og allir þingmenn Vinstri grænna: Nei, nei, við erum á móti þessu, við vorum ekki spurð. Þá kemur þetta átakanlega yfirklór hérna með þessa þingsályktunartillögu sem er hreinn barnaskapur og fullkomlega fáránleg.
Svo leggur hæstv. utanríkisráðherra fram tillögu um stofnun þingmannanefndar til að gera tillögu um þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland. Sú stefna á samkvæmt utanríkisráðherra að byggja á sögulegu tækifæri — endalaus, þessu sögulegu tækifæri vinstri manna — til að ná sátt í utanríkismálum vegna þess að gömlu ágreiningsmálin eru ekki hérna. Hvað erum við þá að horfa upp á í dag? Vinstri grænir leggja til að við förum úr Atlantshafsbandalaginu. Ég get fullyrt að um það verður ekki söguleg sátt. Það segi ég algjörlega og mun standa við það að það mun ég aldrei sætta mig við. Ég mun berjast gegn því af mjög miklum heilindum og harðfylgi (Gripið fram í: Þú ræður …) og reyna eins og ég mögulega get að koma í veg fyrir það.
En það er ekki bara á þessu sviði sem ágreiningurinn er augljós innan ríkisstjórnarinnar. Í makalausri ræðu um helgina endurvann hæstv. forsætisráðherra (Forseti hringir.) gömlu loforðin um þúsundir starfa í orkufrekum iðnaði. Hvar eru Vinstri grænir þar? Hvar á að virkja? Þessi störf verða ekki til (Forseti hringir.) nema það verði virkjað. Hvað segir hv. þm. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir við því?