139. löggjafarþing — 136. fundur,  31. maí 2011.

innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta.

864. mál
[11:20]
Horfa

Sigurður Kári Kristjánsson (S):

Virðulegi forseti. Eins og fram hefur komið í umræðu um þetta frumvarp náðist samkomulag í gær milli fulltrúa stjórnmálaflokkanna á þinginu sem sæti eiga í viðskiptanefnd um að flytja það frumvarp sem hér er til umfjöllunar, um breyting á lögum um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta, með síðari breytingum, og gera þar með nauðsynlegar ráðstafanir fyrir 1. júní í stað þess að ljúka afgreiðslu þess frumvarps sem liggur fyrir þinginu frá hæstv. ríkisstjórn um sama efni.

Eins og kunnugt er höfum við þingmenn Sjálfstæðisflokksins verið mjög andsnúnir frumvarpi efnahags- og viðskiptaráðherra um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta og komið þeim andmælum okkar vel og rækilega á framfæri úr þessum ræðustól og við höfum í rauninni haft miklar efasemdir um þann tillöguflutning sem þar birtist og hefur birst á umliðnum missirum. Málið er auðvitað ekki nýtt af nálinni, það var fyrst flutt í ráðherratíð fyrrverandi hæstv. efnahags- og viðskiptaráðherra, Gylfa Magnússonar.

Samkomulag náðist um að lenda málinu með þessum hætti og öll viðskiptanefnd og þar með ég stend að flutningi þessa frumvarps. Í því samkomulagi felst að fram fari viðræður í sumar milli fulltrúa stjórnmálaflokkanna um framtíðarfyrirkomulag tryggingakerfis vegna innstæðna og fjárfesta. Ég bind miklar vonir við að þær viðræður gangi vel og vonandi næst samkomulag milli flokkanna um þetta mikilvæga mál og það hvernig haga eigi þessu innstæðutryggingakerfi til framtíðar í lögunum. Þetta þýðir auðvitað að nýtt frumvarp verður ekki lagt fram fyrr en næsta haust, á næsta löggjafarþingi í október. Við sjálfstæðismenn í nefndinni munum að sjálfsögðu virða þetta samkomulag og við fögnum því og vonum að niðurstaðan verði árangursrík þannig að allir geti sætt sig við.

Ég vil nefna að í þessu frumvarpi eru nokkur mjög mikilvæg ákvæði að mínu mati. Það segir í 3. mgr. 1. gr. að iðgjöld skuli vera samtala almenns iðgjalds samkvæmt 3. mgr. og iðgjalds sem er reiknað á grundvelli áhættustuðuls samkvæmt 4. mgr. og renna í hina sjálfstæðu deild sjóðsins og að um ráðstöfun fjár úr deildinni skuli fara samkvæmt lögum. Þetta þýðir í rauninni að stofnuð verður ný deild í Tryggingarsjóði innstæðueigenda sem hefur sérstaka kennitölu og er sérstakur lögaðili. Það þýðir með öðrum orðum að kröfur á hendur gamla innstæðutryggingarsjóðnum verða ekki aðfararhæfar hjá hinum nýja sjóði og stjórnvöld munu þá hafa forræði á útgreiðslum úr þeirri deild og forsjá þess.

Þá hefur verið minnst á það hér að í 11. mgr. 1. gr. frumvarpsins er svo fyrir mælt að iðgjöld skuli greidd í krónum og sama eigi við um greiðslur úr deildinni. Þetta er ákaflega mikilvægt ákvæði í þessu frumvarpi og í rauninni samhljóða fyrri lagaákvæðum um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta, en með þessu ákvæði er verið að hnykkja á heimildum yfirmanna og þeirra sem fara með málefni sjóðsins til að ákveða að greiðslur úr deildinni, komi til þess að úr henni þurfi að greiða, skuli fara fram í íslenskum krónum en ekki í erlendum gjaldmiðli.

Þá vil ég vekja athygli á því að í þessu frumvarpi er hugtakið innstæða skilgreind og ég vil líka vekja athygli á því að í 3. tölulið 16. mgr. 1. gr. er ákvæði um að eftirfarandi innstæður skuli ekki njóta verndar samkvæmt lögum þessum, en þar eru tilteknar innstæður fyrirtækis þar sem fjármálafyrirtæki er meirihlutaeigandi. Í upphaflegu frumvarpi hæstv. efnahags- og viðskiptaráðherra var miðað við virkan eignarhlut en það er nú þannig eftir efnahagshrunið að fjármálafyrirtæki eða lífeyrissjóðir hafa orðið stórtækari eignaraðilar að fyrirtækjum sem þurfa reksturs síns vegna að hafa tilteknar háar innstæður til að rekstur þeirra gangi og með því að breyta frumvarpinu með þessum hætti tel ég að stigið sé mikilvægt skref í framfaraátt.

Eins og vonandi hefur komið fram er það ljóst að ég mun styðja þetta frumvarp. Framtíðin í þessum málum varðandi innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta er nokkuð óljós. Frumvarp hæstv. efnahags- og viðskiptaráðherra byggði á tilskipun Evrópusambandsins sem ekki hafði verið tekin upp í EES-samninginn. Nú ber svo við að yfirvöld í Noregi hafa lýst vilja sínum til þess að fá undantekningar eða sérmeðferð frá efnisákvæðum þeirrar tilskipunar sem upphaflegt frumvarp byggði á og ég tel að það muni að öllum líkindum leiða til þess að það dragist enn frekar að þessi tilskipun verði tekin upp í EES-samninginn, ef hún þá verður nokkurn tíma tekin upp í hann. Á vettvangi Evrópuþingsins liggur fyrir frumvarp að nýrri tilskipun um sama mál sem kann að verða samþykkt þar áður en fyrri eða eldri tilskipun verður tekin upp í EES-samninginn þannig að úr því að þessi tilskipun hefur ekki verið tekin upp í EES-samninginn er ljóst að á okkur Íslendingum hvíla engar samningsskuldbindingar samkvæmt EES-samningnum til þess að innleiða tilskipunina í íslenskan rétt.

Ég vil síðan leggja mikla áherslu á að íslensk stjórnvöld nýti tímann til að hefja viðræður við Evrópusambandið til þess að útskýra fyrir þeim að sú tilskipun sem var frumvarp hæstv. efnahags- og viðskiptaráðherra, sem nú hefur verið dregið til baka í raun, henti ekki íslenskum aðstæðum og eigi ekki við á Íslandi. Leita þarf allra leiða til að finna aðrar lausnir, annað fyrirkomulag til að hægt sé að byggja upp og búa við innstæðutryggingakerfi á Íslandi. Ég legg því mikla áherslu á að íslensk stjórnvöld leggi sig fram um að fara í slíkar viðræður á vettvangi EES-samningsins til að tryggja að slík niðurstaða geti fengist.

Ég vil að lokum nefna það úr því að hv. þm. Álfheiður Ingadóttir nefndi það í framsöguræðu sinni að hún legði til að málið gengi til viðskiptanefndar. (Gripið fram í.) Hér lýsir hv. þingmaður því yfir að það hafi verið mistök af sinni hálfu. (Gripið fram í.) Ég ætlaði að lýsa því yfir að ég sæi ekki ástæðu til þess að vísa málinu til viðskiptanefndar vegna þeirrar breiðu sáttar sem náðst hefur um þetta frumvarp.