opinber innkaup.
Frú forseti. Ég vona líka að þetta verði að lögum hér í dag og ég hlíti yfirleitt leiðsögn hinna yngri og vaskari manna í Samfylkingunni.
Ég vil samt leyfa mér að efast stórlega um að það sé rétt mat hjá hv. þm. Magnúsi Orra Schram og félögum mínum í Samfylkingunni að nauðsynlegt sé að samþykkja þessa breytingartillögu. Ég held að hún sé tóm vitleysa og gegni engu sérstöku hlutverki. En ef það má verða til þess að svæfa ósamþykki um málið er hugsanlegt að ég muni síðar í dag falla í sama farveg í atkvæðagreiðslu og hv. þingmaður.