139. löggjafarþing — 138. fundur,  31. maí 2011.

opinber innkaup.

189. mál
[14:09]
Horfa

Álfheiður Ingadóttir (Vg):

Frú forseti. Lyfjakaup eru einn stærsti einstaki útgjaldaliður ríkissjóðs til heilbrigðisþjónustu en náðst hefur gríðarlega mikill árangur á undanförnum missirum og árum í lækkun á lyfjakostnaði hins opinbera. Nú er einnig komin fram raunhæf tillaga um nýtt greiðsluþátttökukerfi í lyfjum sem gagnast mun fjölskyldum í landinu. Það frumvarp sem við erum að samþykkja er enn einn liðurinn í þeirri viðleitni stjórnvalda að ná sem hagstæðustum og bestum kjörum í lyfjakaupum og ná verði sem er sambærilegt við það sem best gerist á Norðurlöndum. Ég tel það mikið framfaraspor að þessi heimild skuli fást.