139. löggjafarþing — 138. fundur,  31. maí 2011.

stjórn fiskveiða.

826. mál
[15:04]
Horfa

Björn Valur Gíslason (Vg) (andsvar):

Forseti. „Besta kerfi í heimi“, þannig hóf hv. þingmaður ræðu sína fyrr í dag og talaði um sjálfbæra stofna, um sjálfbærar greinar. Ég er ekki viss um, eins og ég sagði áðan, að allir mundu taka undir það. (Gripið fram í.) Sköpum þá festu í greininni — ég er algjörlega sammála hv. þingmanni um það. En í besta kerfi í heimi, sem hv. þingmaður telur að hafi verið skapað hér, hefur verið festa í því kerfi? Hefur verið einhver framtíðarsýn? Hefur þetta ekki verið í uppnámi á fjögurra ára fresti? Hefur ekki verið kosið um þetta síðustu 20 eða 30 árin í hvert einasta skipti? Ég hélt það. Er þá hv. þingmaður þeirrar skoðunar þar sem hún spurði í ræðu sinni áðan, hvers vegna að laga það sem ekki er í ólagi? telur hv. þingmaður þá eins og varaformaður Sjálfstæðisflokksins að við eigum ekki að breyta nokkrum sköpum hlut í þessu kerfi, að við eigum að láta sjávarútveginn í friði, eins og hv. þm. Ólöf Nordal sagði í viðtali við Viðskiptablaðið fyrr í vor? Er það niðurstaða Sjálfstæðisflokksins í þessu máli? Ég hef ekki heyrt þá skoðun hjá öðrum sjálfstæðismönnum í þessari umræðu í dag.

Ég spyr hv. þingmann hvort hún sé þeirrar skoðunar að hér þurfi þá engu að breyta, að við búum þrátt fyrir allt að mati hv. þingmanns við besta kerfi í heimi og (Forseti hringir.) það besta verður þá ekki bætt, er það?