139. löggjafarþing — 138. fundur,  31. maí 2011.

stjórn fiskveiða.

826. mál
[15:34]
Horfa

Árni Johnsen (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hæstv. ríkisstjórn byggir ekki á einn eða neinn hátt á jafnræði. Hún byggir á mismunun, loforðum í krafti pólitískrar stöðu, geðþóttaákvörðunum og misnotkun. Það er stefna hæstv. ríkisstjórnar. (Gripið fram í.)

Það er ekki spurning að einkarekstur í sjávarútvegi hefur skilað mestu og það var ágætt fyrirkomulag að láta strandveiðarnar vera utan kvóta. Við höfum alveg svigrúm til þess, meira að segja í meiri mæli en gert hefur verið. Það á ekki að taka kvóta af öðrum sjómönnum á landinu, lækka launin þeirra og láta menn sem hafa jafnvel allt að fimm sinnum selt kvótann sinn og fengið nýjan í staðinn fá enn þá meiri bita af kökunni. Það er ekki boðlegt. Við Sunnlendingar munum að hætti Haukdæla berjast til síðasta manns til að þetta óréttlæti nái ekki fram að ganga. Þetta er svívirða og yfirgangur, virðulegi forseti.

Atvinna í sjávarbyggðum hefur byggst á drifkrafti útgerðarinnar og skapað laun fyrir fjölskyldur, sjómenn og samfélög. Af því hafa samfélög tekjur, ekki af miðstýringu eða pottahræringi frá ríkisstjórn Íslands eða geðþóttaákvörðunum ráðherra. Það þarf að hlúa að rekstri sjávarplássa landsins á raunhæfan hátt en ekki gera þau að samfélögum sem þiggja, þiggja og þiggja. (Forseti hringir.)