stjórn fiskveiða.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Það er auðvitað ekki nóg að þetta sé bara hundleiðinlegt, við þurfum að mæta þessum sjónarmiðum. Um leið og það er mikilvægt að gæta að arðseminni, eins og gert er með því að tryggja að í nýtingarsamningum sé stærstur hluti aflaheimildanna í föstum skorðum og í höndum fyrirtækja sem tryggi góðan arð af greininni, er nauðsynlegt eftir því sem ég skil álit mannréttindanefndarinnar að það séu opnanir í kerfinu. Að það sé möguleiki að hasla sér völl í þessari atvinnugrein, ekki bara til að veiða sér í soðið heldur til að gera þessa grundvallaratvinnugrein að lífsviðurværi sínu á Íslandi og það séu réttindi sem allir Íslendingar hafi og það sé þess vegna nauðsynlegt að gera það með einum eða öðrum hætti.
Hv. þingmaður dró í efa að það væri gott að láta sveitarstjórnir útdeila heimildum. Ég held að það megi hafa efasemdir um byggðakvótann, kannski í þeim anda sem Kristján Þór Júlíusson reifaði hér í gær að það sé ekki alfa og omega í byggðamálum hvort þetta sé 20 tonnum meira hér eða þar og kannski eigi bara alfarið að hverfa frá byggðastuðningi eftir þeirri leið en beita honum meira á öðrum sviðum, eins og í samgöngum og ýmissi opinberri þjónustu og stuðningi við annað atvinnulíf. En ef við erum með byggðakvóta á annað borð, er þá ekki hv. þingmaður sammála mér að þeir stjórnmálamenn sem eru á vettvangi og sveitarfélögin séu í betri færum til að taka þessar ákvarðanir en miðstýringarvaldið í Reykjavík? Er ekki minni hætta á spillingu og meira aðhald með því að láta þetta (Forseti hringir.) í hendur sveitarstjórnanna og fá það aðhald úr heimabyggð sem nauðsynlegt er?