139. löggjafarþing — 138. fundur,  31. maí 2011.

stjórn fiskveiða.

826. mál
[17:31]
Horfa

Ólöf Nordal (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er svo að 80% af útflutningstekjum þjóðarinnar koma af, get ég sagt, auðlindanýtingu, annars vegar af fiskveiðum, hins vegar útflutningi vegna orkutengdrar framleiðslu. Ekki þarf að deila um að í þeim 80% er fiskurinn hvað mikilvægastur. Ég held reyndar að það sé ágætt fyrir okkur, virðulegi forseti, að við séum að ræða fiskveiðimál almennt því við þurfum auðvitað að skilja að við Íslendingar lifum af þessu. Þetta er okkar meginatvinnugrein. Þess vegna finnst mér mjög skrýtið, þegar við erum önnum kafin við að reisa okkur upp úr efnahagsþrengingunum sem við höfum lent í, að hræra í þessu kerfi núna. Það er mín bjargfasta frú.

Ég tek eftir því, virðulegi forseti, að seðlabankastjóri virðist vera að einhverju leyti sammála mér um það. Í skýrslunni sem kom út núna um fjármálastöðugleika lýsir hann verulegum áhyggjum sínum yfir því að þessar breytingar muni hafa mjög skaðleg (Forseti hringir.) áhrif á viðskiptabankana.