stjórn fiskveiða.
Virðulegi forseti. Þetta er athyglisvert. Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki komist í þessa skýrslu, ég sá hins vegar fréttir þar sem þau orð eru höfð eftir seðlabankastjóra að breytingarnar gætu skaðað viðskiptabankana. Töluvert mikið af skuldum sjávarútvegsins eða meginpartur kannski, er við íslensku bankana, þar á meðal ríkisbankann Landsbankann. Við höfum líka séð á svörum við fyrirspurn er sá er hér stendur bar fram að einna minnst er búið að afskrifa í sjávarútveginum hjá viðskiptabönkunum. Það segir okkur að staða annarra greina er jafnvel enn verri.
Forvitnilegt væri að heyra frá hv. þingmanni, ef hún getur í þessu stutta andsvari, hvaða áhrif hún telur að breytingarnar sem boðaðar eru í frumvarpinu, þ.e. að rýra verðgildi eigna sjávarútvegsfyrirtækja í landinu, gætu haft á (Forseti hringir.) viðskiptabankana.