139. löggjafarþing — 138. fundur,  31. maí 2011.

stjórn fiskveiða.

826. mál
[18:43]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, ég er sammála hv. þingmanni í þessu. Það er mikið rætt um það í tengslum við þessi frumvörp núna að þetta eigi að greiða fyrir nýliðun í greininni og gefið er í skyn að hún hafi verið erfið, sem ef grannt er skoðað er bara alls ekki rétt. Þessar breytingar og í raun málflutningur ríkisstjórnarflokkanna sem fellur allur að því að innkalla heimildir, að auka potta, að taka þá aukningu sem verður núna á aflaheimildum af mönnum, við getum lent í því aftur eftir einhver ár, jafnvel eftir skamman tíma, að það verði miklar skerðingar t.d. í þorski. Við vitum ekkert um hvað náttúran færir okkur á hverjum tíma. Við getum lent í miklum skerðingum. Er líklegt að þessi óstöðugleiki og það að í landinu séu stjórnvöld sem hika ekki við að taka af fólki þær aflaheimildir sem það hefur keypt sér og ætlar sér að nýta verði (Forseti hringir.) til þess að greiða fyrir nýliðun í þessari atvinnugrein? (Forseti hringir.) Er líklegt að fólk treysti sér (Forseti hringir.) í framtíðinni til að hasla sér völl í sjávarútvegi?