stjórn fiskveiða.
Frú forseti. Ég er sammála hv. þingmanni um að það sé mikilvægt að sátt og friður ríki um þetta kerfi. Ég tel þess vegna að við þurfum að fara í ákveðnar breytingar til að stuðla að aukinni sátt í samfélaginu um kerfið án þess þó að varpa hugsuninni og kerfinu sem slíku í heild sinni fyrir róða. Við ályktuðum í þá veru á flokksþingi Framsóknarflokksins.
Ég hef áhyggjur af því í hvaða farvegi málin eru hér. Þessu máli hefur verið varpað fram í algjörri ringulreið. Flestallir hagsmunaaðilar hafa sagt að frumvarpið sé ekki pappírsins virði. Það er alveg ljóst að ef stjórnarflokkarnir ætla að setja undir sig höfuðið og keyra málið fram með þessum hætti, þó að það taki á annað ár, verða engar fjárfestingar í þessari undirstöðuatvinnugrein þjóðarinnar og það eru hrikaleg tíðindi fyrir efnahagskerfið. Við skulum ekki gleyma því að um 30 þúsund manns hafa atvinnu sína beint eða óbeint af sjávarútveginum. Við erum að tala um mikla hagsmuni (Forseti hringir.) og þess vegna þurfum við að vanda vel til verka hér.