stjórn fiskveiða.
Frú forseti. Ég tek alveg undir það, það er ýmislegt í útfærsluatriðunum sem má til betri vegar færa og sumt af því nefndi þingmaðurinn hérna áðan eins og það er lýtur að takmörkunum á framsali og ráðstjórnarhugmyndir um úthlutun úr pottum. Meginatriðið sem frumvarpið byggir á er útfærsluatriði sem verður rætt og reifað í nefndinni, sem sagt nýtingarsamningurinn. Norðmenn eru með 18 ár, Framsóknarflokkurinn leggur til 20 ár í sínum tillögum og hér eru lögð til 15 ár. Það getur vel verið, og kæmi mér ekki á óvart, að þessi tími verði lengdur þegar nefndarvinnan fer af stað. Höft verða á framsali, það er ekki verið að banna framsal heldur hefta. (Gripið fram í.) Þó að því yrði breytt og það lagað til er auðvitað líka verið að mæta þar ótta fólksins í sjávarbyggðunum um að það eigi allt sitt undir því að útgerðarmaðurinn sem gerir út núna kjósi að halda heimildunum heima í byggð en selja þær ekki í burtu. Það er váin mikla sem vofir líka yfir byggðunum. Þeim málefnalegu sjónarmiðum er mætt í þessu frumvarpi. Allt eru þetta útfærsluatriði sem þingmaðurinn nefndi (Forseti hringir.) en meginatriðin standa eftir og um þau erum við hjartanlega sammála eins og kom fram áðan.