139. löggjafarþing — 138. fundur,  31. maí 2011.

stjórn fiskveiða.

826. mál
[21:49]
Horfa

Höskuldur Þórhallsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina um veiðigjaldið og dreifingu á því. Ég held að það sé mikilvægt að sú útfærsla sem kemur fram í frumvörpunum eigi sér ekki stað. Ég óttast að það að ríkið taki svona stóran hluta af því geri það að verkum að það komi ekki til baka til landsbyggðarinnar. Ég hef af því verulegar áhyggjur svo ekki sé meira sagt. Við sjáum stóra mannvirkið hér, Hörpu, sem þarfnast gríðarlegs fjármagns. Ef það á að taka fjármagnið úr byggðum landsins til að fjármagna þessa stóru byggingu held ég að betur sé heima setið en af stað farið.

Við lögðum hins vegar til að stór hluti af þessu færi aftur til greinarinnar í nýsköpun og annað og ég held að það sé skynsamleg leið. Síðan töluðum við líka um (Forseti hringir.) að hvert landsvæði fengi úthlutað en þetta átti ekki að fara til höfuðborgarsvæðisins, (Forseti hringir.) síst af öllu.