139. löggjafarþing — 138. fundur,  31. maí 2011.

stjórn fiskveiða.

826. mál
[22:05]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Pétri H. Blöndal fyrir ágæta ræðu. Það er tvennt sem mig langar að ræða við hann. Það fyrra kom hann aðeins inn á í ræðu sinni og það er hvatinn sem liggur að baki því að menn fara í breytingar á fiskveiðistjórnarkerfinu. Til hvers eru menn að þessu? Það hefur legið fyrir frá upphafi, frá því lögin voru sett, og ég held að þeim hafi verið breytt einum 40 sinnum, að alltaf er verið að togast á um einhverja hagsmuni.

Núna liggur það fyrir að í stjórnarsáttmálanum, eða þessari skriflegu yfirlýsingu, eins og ég held að það hafi heitið, hafa menn sett það á blað að þeir ætluðu að fara í endurskoðun á fiskveiðistjórnarkerfinu með það fyrir augum að styrkja rekstrargrundvöll greinarinnar og tryggja að sjávarútvegurinn verði sú atvinnugrein sem geti tekið drýgstan þátt í endurreisn atvinnulífsins á Íslandi.

Í framhaldi af því langar mig að spyrja hv. þingmann: Hvar sér hann þessa göfuga markmiðs stað annars vegar í því frumvarpi sem við ræðum hér og hins vegar í stærra frumvarpinu sem ekki er komið á dagskrá enn? Þau hljóta alla vega að tengjast, eins og hv. þingmaður ræddi, með einum eða öðrum hætti. Hvar sér þessa göfuga markmiðs stað eða er hugsanlegt að markmiðið sé eitthvað annað — og það segi ég í ljósi þess að í því frumvarpi sem við ræðum nú er einum 30 sinnum minnst á heimild til ráðherra. Er það líklegasta leiðin til að styrkja rekstrargrundvöll greinarinnar, og gera hana það öfluga að hún geti staðið undir endurreisn íslensks atvinnulífs, að ráðherra ráðskist með hana nánast að vild sinni eins og (Forseti hringir.) fram kemur í þessu átta greina frumvarpi.