139. löggjafarþing — 138. fundur,  31. maí 2011.

stjórn fiskveiða.

826. mál
[22:56]
Horfa

Ragnheiður Ríkharðsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég get ekki verið sammála hv. þingmanni hvað þetta varðar. Ef auðlindin er í eigu þjóðar er hún í eigu þjóðar. Hún er ekki í eigu einstakra landshluta eða einstakra byggðarlaga, hún er í eigu þjóðar. Að mínu mati þurfum við frekar að velta því fyrir okkur á hvern hátt við ætlum að nýta auðlindasjóð ef hann verður til. Kjósi menn að veita úr honum til uppbyggingar á einstökum svæðum verða menn að taka ákvarðanir um það þar en ekki í fyrir fram gefnum forsendum sem teknar eru í lagafrumvarpi um að svo og svo mörg prósent eigi að renna í þetta sveitarfélag og svo og svo mörg prósent (Forseti hringir.) í annað. (Forseti hringir.) Ég get ekki fallist á það, virðulegur forseti.