139. löggjafarþing — 139. fundur,  1. júní 2011.

stjórn fiskveiða.

826. mál
[15:21]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég tek heils hugar undir ábendingar hv. þingmanns um það sem lýtur að öryggismálum sjómanna og tel að það sé eitt af því mikilvæga sem við þurfum að taka til umfjöllunar í nefndinni. Þar höfum við náð gríðarlegum árangri og ég tel ekki að við eigum að fórna neinu í því efni og skoða þá þætti vel.

Það er gaman að hv. þingmaður komi upp í þessari umræðu. Hann hefur allt aðrar áherslur í þessum málefnum en sá flokkur og þingflokkur sem hann tilheyrir. Það vill svo skemmtilega til að við erum að mörgu leyti sammála. Ég gæti út af fyrir sig alveg fellt mig við hugmyndir hv. þingmanns um að almenningi væru bara afhentar veiðiheimildirnar smátt og smátt yfir ákveðinn tíma og gæti ráðstafað þeim beint.

Við sem búum í þessu landi erum yfir 300 þúsund og verðum að komast að einhverri niðurstöðu um málamiðlun á milli ólíkra sjónarmiða okkar. Ég er sannfærður um að hægt er að vinna úr þeim tillögum sem hér eru og finna (Forseti hringir.) hæfilega málamiðlun.