139. löggjafarþing — 139. fundur,  1. júní 2011.

stjórn fiskveiða.

826. mál
[18:32]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S):

Frú forseti. Við ræðum í annað skiptið frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða og ég ætla að byrja á því enn einu sinni, frú forseti, að tala um rökleysuna í þessum tveimur frumvörpum sem menn hafa rætt nokkuð mikið saman þó að aðeins annað sé á dagskrá. (Forseti hringir.)

(Forseti (ÁI): Forseti biður um þögn í salnum. Hv. þingmaður er að flytja ræðu og forseti biður þingmenn í salnum að hlýða á hana.)

Þakka þér kærlega fyrir, frú forseti. Ég var sem sagt að ræða um þá rökleysu sem felst í því að einn og sami hæstv. ráðherra, sjávarútvegsráðherra — og ég vildi gjarnan að hann hlýddi á mál mitt. Það finnst mér lágmarkskurteisi ef hægt er að koma því við, það er hæstv. sjávarútvegsráðherra sem flytur málið. Rökleysan felst í því að við erum með tvö mál til umræðu og annað er breyting á lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, og í 32. gr. hins frumvarpsins segir, með leyfi forseta:

„Lög þessi öðlast þegar gildi, en jafnframt falla úr gildi lög nr. 116/2006 …“

Lögin sem við erum búin að ræða hér í lengri tíma eiga að falla úr gildi, frú forseti. Svo stendur auk þess:

„Lög þessu skulu hafa gildi í 23 ár frá gildistöku þeirra.“

Það er ekki hægt að setja svona ákvæði inn í lög vegna þess að næsta Alþingi hefur löggjafarvald. Það getur samþykkt að taka hvaða einustu lög sem það vill úr gildi eða breytt þeim. Þetta ákvæði er algjörlega tómt og ég skil ekkert í fólki að koma með það.

Ég er búinn að spyrja forseta að því nokkrum sinnum hvort svona mál séu þingtæk þar sem okkur er sagt í öðru málinu að það eigi að breyta þessu og hinu og hitt málið tekur það um leið úr sambandi. Ég ætla ekki að dvelja lengur við þetta því að ég hef mjög stuttan tíma. Hann er eiginlega liðinn.

Það vantar markmið með frumvarpinu. Ég spyr hæstv. sjávarútvegsráðherra og vil fá svar frá honum: Hvert er markmiðið með frumvarpinu?

Ég tel að þetta frumvarp sé dýr rómantík og hættuleg. Það er rómantík um strandveiðar-þetta og strandveiðar-hitt. Það er eins og allir bændur eigi að fara að slá með orfi og ljá.

Ég ætla að ræða dálítið um 3. gr., hvernig kvótanum yrði dreift til byggðarlaganna, og svo um 6. gr. þar sem auðlindagjaldinu er dreift á byggðir landsins en þó ekki til þeirra sem ekki gera út. Þetta frumvarp segir að sumir Íslendingar eigi kvótann, þ.e. ákveðinn hluti þjóðarinnar, en annar hluti, t.d. íbúar Mosfellsbæjar, á ekkert í kvótanum. Hér er gert ráð fyrir að Mosfellingar fái ekki hlut í auðlindagjaldinu.

Mig langar rétt aðeins að koma inn á efnahagsleg áhrif þessa frumvarps. Skuldir sjávarútvegsins eru af ýmsum toga, nokkrar eru vegna kaupa á kvóta og annars slíks en nokkur fyrirtæki hafa farið út í að kaupa hlutabréf í bönkunum og fjárfest í útlöndum. Það kemur sjávarútveginum ekkert við og þessari stefnu ekki heldur. Ég hef enga samúð með þeim, skuldir sjávarútvegsins eru mjög mismunandi og það er ekki hægt að segja að afkoma greinarinnar sé slæm. Ég held að hún sé góð og hafi líka verið það fyrir hrun. Þegar við bætum við fleiri sjómönnum til að veiða jafnmörg kíló af fiski þarf fleiri landverkamenn til að vinna þau og það er erfiðara að selja kílóin, fiskurinn kemur frá mörgum mismunandi litlum stöðum og það þýðir ekkert annað en það að arðsemin minnkar, laun sjómanna lækka og laun landverkafólks sömuleiðis. Það sem fer út úr kerfinu er jafnmörg tonn á væntanlega sama verði og þar með minnkar hagur sveitarfélaganna. Ekki nóg með það, frú forseti, hagur alls landsins minnkar og sumir bankar, eins og Landsbankinn sem á miklar kröfur á sjávarútveginn, geta lent í vandræðum. Það vill svo til að Landsbankinn hefur gefið út skuldabréf til gamla Landsbankans upp á 360 milljarða sem er gengistryggt og með ríkisábyrgð.