139. löggjafarþing — 139. fundur,  1. júní 2011.

stjórn fiskveiða.

826. mál
[20:37]
Horfa

Birgir Ármannsson (S) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Ég vil taka fram að hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur verið töluvert í húsinu og framan af umræðunni var hann nokkuð virkur í að veita andsvör þannig að að gagni mátti koma. Nú þegar hallar undir lok þessarar umræðu eða nokkuð er liðið á hana væri ekki síður gagnlegt að hafa hæstv. ráðherra viðstaddan umræðuna. Sama á auðvitað um hæstv. forsætisráðherra og hæstv. fjármálaráðherra, leiðtoga ríkisstjórnarflokkanna, leiðtoga þeirrar ríkisstjórnar sem ber ábyrgð á þessum frumvörpum, leiðtoga ríkisstjórnarflokkanna sem hafa hvað eftir annað lýst því yfir að þessar breytingar á sjávarútvegskerfinu séu eitt af grundvallarmálum ríkisstjórnarinnar. Það er gríðarlega mikilvægt að þessir hæstv. ráðherrar séu við umræðuna og taki þátt í henni ekki síst þegar kemur í ljós að þeirra eigin flokksmenn hafa verulegar athugasemdir við mörg ákvæði frumvarpsins.