stjórn fiskveiða.
Herra forseti. Hv. þm. Birgir Ármannsson spyr hvort ég styðji frumvarpið. Vissulega styð ég meginþætti þess. Mjög sögulegt tækifæri blasir við okkur, að breyta meinsemd kvótakerfisins á Íslandi sem, eins og ég gat um í ræðu minni, felur í sér að menn geti selt það sem þeir eiga ekki í raun. (Gripið fram í: Það er ekki í þessu frumvarpi.) Það lýtur að stóra frumvarpinu, ég viðurkenni það vitaskuld.
En hvað varðar minna frumvarpið hef ég sett ákveðna fyrirvara við þá potta sem þar eru og jafnframt það gjald sem tekið er fyrir og hvernig það verður innheimt, hvort það verður innheimt af framlegð eða hagnaði. Ég tel að það eigi að innheimtast fremur af hagnaði en framlegð þó að það hafi vissulega líka ákveðna vankanta hvað varðar þau fyrirtæki sem skuldsetja sig á hverjum tíma versus þau sem eru vel rekin. En ég tel líka að þeim sjóði (Forseti hringir.) sem auðlindagjaldið fer í eigi að ráðstafa til þeirra byggða sem hafa farið verst út úr kvótakerfinu.