139. löggjafarþing — 139. fundur,  1. júní 2011.

stjórn fiskveiða.

826. mál
[22:37]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (S) (andsvar):

Herra forseti. Tel ég að auknar heimildir til ráðherra til reglugerðarheimildar auki á ráðherraræði? Já. Þurfum við nokkuð að segja meira með þessa ríkisstjórn? Hún notar hvert einasta tækifæri í smáum sem stórum málum til þess að auka miðstýringu og forsjárhyggju í landinu. Við vitum það. Við sjáum bara hvernig inntakan í framhaldsskólana hefur þróast. Við sjáum hvernig innanríkisráðherra beitir sér í auglýsingum á áfengi og hvernig ráðherrar beita sér í hinum stóru málum eins og því sem við ræðum núna þar sem valdheimildir ráðherra eru auknar gagngert þegar við höfum tiltölulega gott kerfi sem er markaðsdrifið. En það er ákveðin reglufesta sem er í kringum sjávarútvegskerfi okkar. Já, ég er mjög hrædd, eða eins og krakkarnir mundu segja: Ég er skíthrædd um að ráðherraræði aukist.

Varðandi framsalið. Fullkomið framsal á allan afla á markað — þá dregur það fram … (Forseti hringir.) Tíminn er búinn. Ég er búin með báðar ræðurnar og við getum ekki rætt þetta mál frekar, hvað þá að við getum rætt það við ráðherra í ríkisstjórn. Það er líka umhugsunarefni hvernig 1. umr. í stórum málum (Forseti hringir.) er byggð upp.