stjórn fiskveiða.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Henni varð tíðrætt um þann nýtingartíma sem í frumvarpinu felst og möguleika á framlengingu. Nýtingartíminn er áætlaður 15 ár með möguleika á framlengingu í átta ár. Samanlagt eru það 23 ár.
Eins og þingmaðurinn benti á er ekki hægt að ræða minna frumvarpið án þess að lesa hið stærra í leiðinni og ég spyr: Hverja telur þingmaðurinn ástæðuna fyrir því að þessi lög, verði frumvarpið samþykkt — þetta frumvarp kemur til með að falla úr gildi þegar stærra frumvarpið verður að lögum — falla úr gildi samkvæmt 32. gr. frumvarpsins eftir 23 ár? Af hverju ætlar ríkisstjórnin að skilja sjávarútveginn eftir í lausu lofti eftir 23 ár?