139. löggjafarþing — 139. fundur,  1. júní 2011.

stjórn fiskveiða.

826. mál
[23:05]
Horfa

Ragnheiður E. Árnadóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég fagna því að þingmaðurinn er í sáttarhug. Ég get deilt þeirri skoðun minni með honum að ég er það líka. Þess vegna þreytist ég ekki á að tala um sáttanefndina. Þar var sá grunnur lagður og þingmaðurinn veit nákvæmlega eins og ég að þessi niðurstaða er ekki í samræmi við niðurstöðuna sem nefndin náði. (RM: Er það fyrningarleiðin?) Þetta er ekki fyrningarleiðin. Við hv. þingmaður höfum líka átt orðastað um þetta.

Ég er þeirrar skoðunar að þetta sé fyrningarleiðin bakdyramegin. Fyrningarleiðin er hvað? Að taka hluta af heimildunum og fyrna á ákveðnu árabili. Hvað er þetta? Þetta er upptaka aflaheimilda og endurúthlutun. Fyrir mér er þetta nákvæmlega það sama. (RM: Það mætti gera það á lengri tíma.) Ég vil gera það á lengri tíma í samráði við greinina með stöðugleika að leiðarljósi. (Forseti hringir.) Það var stórt skref að fallast á að gera nýtingarsamninga til lengri tíma. Þetta snýst ekki um það. (Forseti hringir.) Menn verða að hafa stöðugleika og tryggt rekstrarumhverfi til að viðhalda fjárfestingunni svo að þeir haldi áfram að stunda atvinnugreinina.