139. löggjafarþing — 139. fundur, 1. júní 2011.
stjórn fiskveiða.
826. mál
Ég vil ítreka það sem ég sagði áðan. Samkomulag er um að þingfundur standi lengur en þingsköp segja til um. Það er talað um það að á þriðjudögum geti fundur staðið til miðnættis. — Nú er sjávarútvegsráðherra kominn í salinn eins og hv. þingmaður óskaði eftir. Hann er reiðubúinn til að hlusta á ræðu hv. þingmanns.