stjórn fiskveiða.
Virðulegur forseti. Já, því miður held ég að þetta sé alveg rétt greining. Sem betur fer er hægt að ná sátt en því miður eru örfáir þingmenn, líklega sérstaklega hæstv. forsætisráðherra, sem vilja ekki sátt, vilja beinlínis koma í veg fyrir hana.
Ég gæti líka nefnt hv. þm. Kristján Möller, Siglfirðing. Ég þykist vita að hv. þingmaður sem þekkir aðstæður á Siglufirði geri sér grein fyrir því hversu vitlaus nálgun hæstv. forsætisráðherra í þessu máli er og vildi gjarnan ná víðtækri sátt um málið. Á meðan stjórnarliðar þora ekki að setja hæstv. forsætisráðherra stólinn fyrir dyrnar, segja einfaldlega: Hingað og ekki lengra, (Forseti hringir.) nú skulum við ná ásættanlegri niðurstöðu í þetta mál, fara skynsamlegustu leiðina, verðum við því miður með þetta mál í áframhaldandi óvissu og upplausnarástand í íslensku efnahagslífi.