stjórn fiskveiða.
Virðulegur forseti. Í ræðu minni áðan kom ég lítillega inn á sanngirnismál en ég ætla að velta aðeins nánar vöngum yfir þeim þætti málsins vegna þess að stjórnarliðar, og ekki hvað síst hæstv. forsætisráðherra, hafa iðulega talað á þeim nótum að sjávarútvegsmálin og þær breytingar sem nauðsynlegt væri að gera á fiskveiðistjórnarkerfinu snerust fyrst og fremst um sanngirni. Hæstv. forsætisráðherra uppnefnir iðulega þá menn sem starfa í sjávarútvegi eða reka sjávarútvegsfyrirtæki og kallar þá til að mynda kvótagreifa. Hæstv. forsætisráðherra gleymir því þá jafnan að miklu fleiri starfa í sjávarútvegi en þeir sem reka sjávarútvegsfyrirtæki, svo sem sjómenn, fólk í vinnslu í landi og 25–30 þús. manns í störfum sem tengjast sjávarútvegi beint eða óbeint.
Víkjum að þessum svokölluðu kvótagreifum, sægreifum og hvað þeir eru nú kallaðir. Þessir menn sem reka sjávarútvegsfyrirtæki — og þetta eru ekki bara einhver stórfyrirtæki í LÍÚ, einhver örfá stórútgerðarfyrirtæki, nei, við erum að tala um mörg hundruð manns sem leitast við að reka lítil og meðalstór sjávarútvegsfyrirtæki um allt land — fengu í langflestum tilvikum ekki það sem hæstv. forsætisráðherra og sumir fleiri kalla gjafakvóta. Um og yfir 95%, 96% kannski, ég veit ekki nákvæma tölu og bíð eftir svari frá hæstv. ráðherra við fyrirspurn þar um, yfirgnæfandi meiri hluti þeirra sem nú hafa kvóta þurfti að kaupa þann kvóta, mjög háu verði oft og tíðum, og í flestum tilvikum skuldsetja sig til að geta keypt kvótann, keypt leyfi til að taka þátt í sjávarútvegi.
Af hverjum keyptu þeir kvótann? Ja, í grunninn af þeim sem fengu kvóta úthlutað þegar kerfinu var komið á svoleiðis að ætlun hæstv. forsætisráðherra er að refsa þeim sem hafa skuldsett sig til þess að komast inn í greinina til þess að stunda sjávarútveg en verðlauna þá sem eru búnir að selja sig út úr greininni. Það er sérstaklega tekið fram að menn megi ekki veðsetja kvóta og þar af leiðandi geta þeir ekki skuldsett sig til þess að kaupa kvóta. Þeir sem eru þegar skuldsettir vegna þess kerfis sem hér hefur verið við lýði missa þá kvótann, og hverjir eru í bestri aðstöðu til að kaupa kvóta og nýta hann? Væntanlega þeir sem störfuðu áður í sjávarútvegi og eru búnir að selja sig út úr honum. Eru það ekki þeir sem hæstv. forsætisráðherra er, eða var a.m.k. í upphafi, að tala um þegar hæstv. ráðherra talaði um sægreifa? Með öðrum orðum snýst þetta frumvarp eða þessi frumvörp um að færa aflaheimildir, kvótann, aftur í hendur sægreifa.
Væri ekki skynsamlegra að reyna að breyta kerfinu þannig að menn eigi möguleika á að koma inn í greinina þó að þeir eigi ekki fjármagn sem þeir hafa aflað með kvótasölu? Væri ekki líka skynsamlegra að búa þannig um hnútana að sjávarútvegsfyrirtæki gætu starfað við sæmilegt öryggi um allt land, á sem flestum stöðum? Um það erum við þó sammála, við hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, að það er mjög æskilegt og hagkvæmt, þó að kannski sé ekki alltaf hægt að reikna hagkvæmnina út á einfaldan hátt, að sjávarútvegur sé stundaður sem víðast um land, að landið sé sem mest í byggð. Við viljum báðir að fólk hafi tækifæri til að komast inn í sjávarútveginn, að nýliðun sé möguleg, og við viljum að sem flestar byggðir vítt og breitt um landið geti haft sjávarútveg sem grunnstoð. En þessar tillögur gera (Forseti hringir.) hvorugt.