stjórn fiskveiða.
Hæstv. forseti. Þessi stjórnmálaskýring hv. þm. Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar er nokkuð í samræmi við mitt mat, að forustumenn ríkisstjórnarinnar telji sig hafa lagt mikið undir pólitískt með því að berjast fyrir og segjast berjast fyrir umbyltingu eða umbreytingum á kvótakerfinu. Þeir hafa lent í ákveðnu öngstræti í sambandi við hvernig eigi að breyta því, en frekar en að bíða aðeins og reyna að vanda undirbúninginn betur, reyna að ná víðtækara samkomulagi og koma með skynsamlegri útfærslu er bara vaðið áfram, ekki í þágu málefnisins, ekki í þágu greinarinnar, ekki í þágu þjóðarhags, heldur einvörðungu í þágu spunans.