stjórn fiskveiða.
Virðulegur forseti. Já, það er óneitanlega svekkjandi að horfa upp á þetta en því miður er þetta ekki í fyrsta skipti sem við verðum vör við þessi vinnubrögð af hálfu ríkisstjórnarinnar þar sem allt gengur í raun út á umræðuna, að reyna að stýra henni, hanna hana og halda henni svo gangandi frekar en staðreyndir eða einhver stefnumál sem gagn er í eða máli skipta.
Því miður hefur þessi spunastarfsemi gengið miklu betur hjá ríkisstjórninni en tilefni hafa verið til. Þess vegna leyfa þau sér líklega að halda þessu áfram og færa sig upp á skaftið með jafnótrúlegum hætti og við höfum séð í umræðu um sjávarútvegsmálin. Ég vildi gjarnan komast í aðstöðu til að ræða um kosti og galla ólíkra nálgana, til að mynda þeirra leiða sem ræddar voru í þeim mikla hópi sem hæstv. núverandi ráðherra Guðbjartur Hannesson fór fyrir. Það er hins vegar ekki í boði, í staðinn er lagt fram frumvarp tveimur mánuðum eftir að frestur til þess rennur út sem enginn virðist sáttur við, ekki stjórnarliðar frekar en stjórnarandstaða, og virðist fyrst og fremst til þess ætlað að halda gangandi umræðu um sjávarútvegsmálin, setja þau í uppnám svoleiðis að hægt sé að halda spunaleikjunum áfram.