139. löggjafarþing — 140. fundur,  3. júní 2011.

landsdómur.

[13:37]
Horfa

forsætisráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég hef í sjálfu sér ekki miklu við það að bæta sem ég sagði áðan. Á milli andsvara í þessum ræðustól var ég þó upplýst um að það er ekki forsætisnefnd sem tók þessa ákvörðun, sem mér var ekki kunnugt um, heldur sérstök saksóknarnefnd sem er skipuð af Alþingi. Hún ætti þá að koma fram með sinn rökstuðning og skýringar á þessu máli.