aðstoð við bændur á gossvæðinu.
Virðulegi forseti. Ég hygg að ég fari rétt með þegar ég segi að reikningurinn vegna Eyjafjallagossins hafi verið um 1 milljarður kr. sem þurfti að verja í aðgerðir. Ég á ekki von á að það verði eins mikið vegna Grímsvatnagossins.
Það er alveg rétt að við búum að þeirri reynslu sem við fengum þegar við gengum í gegnum náttúruhamfarirnar í fyrra sem vonandi gerir það að verkum að við fáum niðurstöðu hvað þetta varðar mjög fljótt. Eins og ég sagði skal ég af þessu tilefni athuga hvar málið er statt, en ég held að þeir sem eigi rétt á greiðslum úr Bjargráðasjóði geti verið alveg rólegir með það að við munum bæta það tjón í samræmi við gildandi reglur og við munum flýta því eins og kostur er.