frumvörp um stjórn fiskveiða.
Virðulegi forseti. Nú eru til umfjöllunar í þinginu sjávarútvegsmál ríkisstjórnarinnar, nokkuð sem hæstv. forsætisráðherra hefur haft miklar skoðanir á og tjáð sig mikið um nauðsynlegar breytingar á kvótakerfinu á fundum utan Alþingis, en hæstv. forsætisráðherra hefur þó ekki séð ástæðu til að vera við umræðuna um málið hér undanfarna daga. Nú er svo komið að stóra málið er komið á dagskrá og enn hefur forsætisráðherra ekki séð ástæðu til að vera við umræðuna. Því er óhjákvæmilegt að beina spurningu í fyrirspurnatíma til ráðherra um skoðanir hennar á því hvernig þetta mál kemur inn í þingið.
Það vekur mikla athygli, og er reyndar alveg ótrúlegt, að í umsögn fjárlagaskrifstofu fjármálaráðuneytisins er farið mjög nærri því að segja að tilteknir þættir í þessu frumvarpi brjóti gegn ákvæðum stjórnarskrár lýðveldisins Íslands.
Mig langar að spyrja hæstv. forsætisráðherra hvernig það komi til að virðuleg ríkisstjórn og hæstv. forsætisráðherra leggi fram frumvarp á þingi þar sem tiltekið ráðuneyti í Stjórnarráðinu lætur að því liggja að um brot á stjórnarskrá sé að ræða. Þetta lá fyrir áður en þetta mál var lagt fram í þinginu. Þetta lá fyrir þegar málið var kynnt fyrir þingflokkum. Það vekur vægast sagt furðu að hæstv. forsætisráðherra skuli vinna með þessum hætti og samþykkja þetta svona.
Í öðru lagi: Hvernig stendur á því að hæstv. forsætisráðherra samþykkir að lagt sé fram frumvarp sem getur haft mjög alvarlegar afleiðingar á efnahagslíf þjóðarinnar, á hagvöxtinn, án þess að búið sé að greina það hagfræðilega hver þau áhrif eru? Hvernig stendur á því að menn leggja fram slíkt frumvarp án þess að það liggi fyrir og boði það að slíka athugun eigi að gera einhvern tímann seinna?
Virðulegi forseti. Ég vil að hæstv. forsætisráðherra svari þessum tveimur spurningum skýrt. (Forseti hringir.) Hvað á það að þýða að leggja fram frumvörp með þessum hætti?