stjórn fiskveiða.
Virðulegi forseti. Það þarf eiginlega að fara fram á að auglýst verði eftir ríkisstjórnarmeirihlutanum í þessu máli. Hér í þingsal er viðstaddur einn þingmaður í stuðningsliði ríkisstjórnarinnar og það er sá sem ætlar að halda næstu ræðu, hv. þm. Kristján L. Möller. Aðrir eru ekki hér.
Ráðherrar í þessari ríkisstjórn, sem leggja svona mikla ofuráherslu á að tala fyrir þessu máli, hafa ekki sést í þessari umræðu. Margoft hefur verið beðið um að hæstv. forsætisráðherra komi til umræðunnar og hæstv. fjármálaráðherra. Þau hafa ekki látið sjá sig, þau eru ekki á mælendaskrá, ekki einn einasti ráðherra í ríkisstjórninni er á mælendaskrá. Það er náttúrlega alveg fráleitt að þannig sé haldið áfram.
Maður spyr sig að því: Er þetta ekki þetta stóra mál sem menn hafa verið að tala um? Hvernig stendur á því að forsvarsmaður ríkisstjórnarinnar sér enga ástæðu til að ræða þetta mál við þingmenn? Það virðist ekki vera neitt vandamál fyrir hæstv. forsætisráðherra að tala um þetta úti um allan bæ en ekki hér í þingsal.
Það verður að krefjast þess, virðulegi forseti, að þessir ráðherrar komi til umræðunnar og hlusti á það sem hér fer fram.