139. löggjafarþing — 141. fundur,  6. júní 2011.

erlend staða þjóðarbúsins.

[10:35]
Horfa

fjármálaráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg):

Frú forseti. Ég held að það hafi legið fyrir allan tímann að það var miklum erfiðleikum háð að meta þessar tölur fyrst eftir bankahrunið og ég held að Seðlabankinn hafi á öllum tímum haft mikla fyrirvara á þeim. Hann hefur lagt í mikla vinnu við að reyna að greina þetta, samanber skýrsluna Hvað skuldar þjóðin?, og það er vissulega rétt að um var að ræða nokkuð bjartsýnt mat á því hver hrein erlend staða þjóðarbúsins gæti orðið þegar uppgjöri gömlu bankanna lyki. Menn hafa endurmetið þær tölur og þær eru nokkuð til hækkunar, það er alveg rétt. En ég tel að eftir sem áður standi sú heildarmynd að þegar rykið verður sest verður hrein staða þjóðarbúsins, hreinar erlendar skuldir, mun betri en hún var á árunum fyrir hrunið. En hún verður kannski ekki eins góð og fyrstu tilraunir til að nálgast þetta gáfu vonir um.

Hér er auðvitað fyrst og fremst um skuldir einkaaðilar að ræða og þá skiptir öllu máli að þeir séu í færum til að ráða við skuldir sínar, margir þeirra með tekjur í erlendri mynt. Það er önnur breyta í þessu, sem kannski á eftir að skipta meiru þegar upp er staðið, og það er einfaldlega gjaldeyrisjöfnuðurinn í uppgjörinu. Svo lengi sem hann er ekki að ráði skakkur, en ekki er ástæða til að ætla að svo sé, þá er þetta eins og gengur með það hvernig mönnum síðan gengur að greiða þær skuldir sem þeir bera. Auðvitað vildum við gjarnan að þær væru sem lægstar en þetta eru ekki skuldir ríkisins og ekki nema að mjög miklu leyti opinberra aðila annarra en þá þeirra sem eru með langtímafjárfestingar í gjaldeyrisskapandi greinum. Hér er fyrst og fremst um að ræða hvað stendur eftir af hreinum skuldum einkaaðila þegar uppgjörið hefur farið fram. Svo fremi sem gjaldeyrisjöfnuðurinn er ekki mjög óhagstæður er ekki ástæða til að fara á taugum yfir þessu að ég tel. Ég tel ekki við Seðlabankann að sakast í þessum efnum, ég held að þar hafi menn reynt samkvæmt bestu getu að meta þetta en öllum hefur verið ljóst að það væri mjög erfitt.