139. löggjafarþing — 144. fundur, 8. júní 2011.
afgreiðsla frumvarps um stjórn fiskveiða.
Áður en fram verður haldið um fundarstjórn forseta vill forseti láta þess getið að forseti Alþingis, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, hefur boðað formenn stjórnmálaflokkanna á þingi á sinn fund og mun í framhaldi af þeim fundi boða þingflokksformenn á sinn fund. Er það ósk sitjandi forseta að hv. þingmenn virði þessa framkomnu ósk forseta þingsins og við getum gengið til dagskrár.