139. löggjafarþing — 144. fundur, 8. júní 2011.
fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Ég vil bara leiðrétta misskilning hv. þm. Eyglóar Harðardóttur. Ég var ekki að segja að mér væri ekki kunnugt um fyrirspurnina, ég var einfaldlega að segja að mér væri ekki kunnugt um hvar svarið við henni stæði. Það er í vinnslu í ráðuneytinu. Mér er ekki kunnugt um hvort það er tilbúið en ég lofaði að gera að því gangskör að tryggja að það kæmi fram sem allra fyrst.