losun gróðurhúsalofttegunda.
Hæstv. forseti. Ég vil í upphafi geta þess að þetta mál er auðvitað mjög stórt og kemur til með að hafa mikil áhrif hér á landi sem og annars staðar á næstu árum. Við stígum hér skref sem færir flugreksturinn inn í viðskiptakerfi Evrópusambandsins með útblásturskvóta og raunar eru stigin ákveðin skref sem tengjast öðrum atvinnugreinum en reglusetning að því leyti bíður hins vegar næsta vetrar eftir því sem okkur hefur verið greint frá. Þó að í 6. gr. frumvarpsins sé getið um starfsemi annarra fyrirtækja þá snýst þetta frumvarp fyrst og fremst um flugið.
Ljóst er að þetta mál getur haft mikil áhrif að mörgu leyti, þess vegna er ekki óeðlilegt að það fái nokkra umfjöllun í þinginu þó það sé þess eðlis, eins og ráða má af nefndaráliti meiri hluta umhverfisnefndar og breytingartillögum sem gerðar eru af hans hálfu, að á því liggur að ljúka því í þinginu. Í breytingartillögum setjum við viðmið um 15. júní 2011, það er nú bara í næstu viku, hæstv. forseti. Það er því alveg ljóst að þingið þarf að ljúka þessu. Er ég reyndar þeirrar skoðunar og get komið þeirri skoðun á framfæri við hæstv. forseta að þetta mál sem slíkt eigi auðvitað að hafa forgang þegar það kemur til 3. umr. miðað við ýmis önnur mál sem sett eru á dagskrá þingsins einfaldlega vegna þessarar dagsetningar. Hún skiptir verulegu máli fyrir íslenska flugrekstraraðila sérstaklega svo þeir geti setið við sama borð og evrópskir að þessu leyti.
Við höfum í andsvörum skipst á skoðunum um hvort rétt hafi verið að fara þá leið sem frumvarpið gerir ráð fyrir. Frumvarpið á rætur sínar að rekja til ákvarðana sem eru eldri en það. Eins og ég sagði áðan álít ég að við bökkum ekkert út úr því. Við þurfum að fylgja þeim ákvörðunum eftir, það gerum við best með því að afgreiða frumvarpið út frá hagsmunum íslenskra fyrirtækja sem skipta auðvitað verulegu máli í þessu samhengi.
Auðvitað má hafa alls konar sjónarmið varðandi það viðskiptakerfi sem hér um ræðir. Stundum hefur verið talað um að á fjármálamörkuðum sé verið að versla með loft en sennilega hefur það nú ekki verið sannara í nokkru öðru tilviki en þessu. Að þessu leyti er um tilbúinn manngerðan markað að ræða og markaðskerfi sem er uppfundið á síðustu árum og hannað fyrir þessa tilteknu tegund viðskipta. Í fyrsta lagi byggir hugmyndin á bak við kerfið á því að hreint loft sé takmörkuð gæði, þar af leiðandi er reynt að sporna við útblæstri gróðurhúsalofttegunda. Það er gert með tilteknu kerfi en til að láta það kerfi ná fram að ganga með sem jákvæðustum hætti og til að ná fram sem mestri hagkvæmni eru ákveðin grundvallarlögmál markaðskerfisins notuð. Eiginlega er verið að verðleggja mengun. Þeir sem menga þurfa að borga fyrir þær. Það er grundvallarhugsunin í þessu. Til að ná fram hagkvæmni og þá kannski um leið að umbuna þeim sem standa sig vel, finna leiðir til þess að draga úr mengun o.s.frv., er búið til verð. Menn geta skipst á heimildum, selt þær, menn geta selt heimildir ef aðrir eru tilbúnir að borga fyrir það. Á hinn kantinn geta menn auðvitað líka keypt sér heimildir ef þeir telja sig geta nýtt þær til hagkvæms rekstrar.
Í þessu felast auðvitað ákveðnir möguleikar eins og raunar var vikið að fyrr í umræðunni. Þegar kerfið verður komið í framkvæmd felst t.d. í því sá möguleiki að íslensk iðnfyrirtæki sem telja sig geta náð fram hagkvæmum og arðbærum rekstri geta keypt til sín auknar heimildir og aukið framleiðslu sína. Í því kunna að felast verulegir möguleikar. Ég held að full ástæða sé til að horfa jákvæðum augum á þá hlið mála. Ég sé því í þessu ákveðin sóknartækifæri fyrir íslenskt atvinnulíf þegar horft er til framtíðar. Vissulega þarf að borga fyrir heimildirnar en ef fyrirtækin telja sig geta nýtt þær með hagkvæmum og arðbærum hætti er sá möguleiki fyrir hendi að auka við heimildirnar með því að kaupa heimildir frá öðrum löndum innan Evrópusvæðisins. Það er að mínu mati hið besta mál.
Hv. þm. Vigdís Hauksdóttir vék að því í andsvörum við hv. þm. Kristján Þór Júlíusson að vissulega gæti falist í þessu ákveðin gjaldtaka á atvinnulífið líka. (Gripið fram í.) Hv. þm. Kristján Þór Júlíusson vakti athygli á því að það væri þá eitthvað sem þyrfti að skoða í samhengi við aðra gjaldtöku. Mér finnst hárrétt hjá hv. þm. Vigdísi Hauksdóttur að vekja athygli á þessu og vil taka undir það sem fram hefur komið hér, m.a. hjá hv. þm. Kristjáni Þór Júlíussyni að þegar við tökum ákvarðanir sem varða skattlagningu fyrirtækja sem heyra undir þetta kerfi hljótum við að skoða allar hliðar málsins, alla hugsanlega gjaldtöku sem á fyrirtækjunum hvílir í samhengi. Ég er því þeirrar skoðunar að gjaldaaukning eða skattahækkun eða hvað við köllum það sem tengist þessari löggjöf sérstaklega þarf að skoðast í samhengi við aðra löggjöf. Við höfum séð á allra síðustu missirum hugmyndir og beinar tillögur og jafnvel lagabreytingar sem hafa falið í sér sérstaka skattlagningu á fyrirtæki sem menga eða skila frá sér m.a. gróðurhúsalofttegundum. Það þarf að skoða heildstætt þannig að þær breytingar sem þetta kerfi leiðir af sér þurfa ekkert endilega að leiða til aukningar þegar á allt er litið. Í því sambandi finnst mér auðvitað rétt að benda á að þær skattbreytingar sem hér hafa verið á dagskrá innan lands hafa fyrst og fremst og augljóslega verið til þess ætlaðar að auka tekjur ríkisins þannig að þetta tel ég að þurfi að skoða allt heildstætt.
Nú veit ég að hv. þm. Vigdís Hauksdóttir, sem eins og fram hefur komið hefur skilað afar ítarlegu og fróðlegu nefndaráliti, hefur áhyggjur af því að við séum að tengjast Evrópusambandinu með þessum hætti. Það er auðvitað rétt svo langt sem það nær. Þarna er um að ræða tengingu við viðskiptakerfi sem Evrópusambandið hefur sett upp á þessu sviði. Fyrir okkur sem erum andvíg aðild að Evrópusambandinu hlýtur slíkt alltaf að vera umhugsunarefni. Ég held hins vegar að í þessu tilviki séum við ekki að ganga lengra en eðlilegt er miðað við hagsmuni íslenskra fyrirtækja og raunar miðað við aðild okkar að Evrópska efnahagssvæðinu. Ég held að þetta samræmist því fyrirkomulagi ágætlega. Ég hef því ekki áhyggjur af þeim þætti sérstaklega en þakka þó hv. þm. Vigdísi Hauksdóttur fyrir að vekja athygli á þeirri hlið mála.
Um þetta frumvarp, tæknilega útfærslu og annað þess háttar, mætti vissulega hafa langt mál. Ég ætla ekki að fara út í það að svo stöddu, hæstv. forseti, en vil áður en ég lýk máli mínu ítreka að ég tel að í þágu íslensks atvinnulífs sé mikilvægt að málið klárist á þinginu á næstu klukkustundum eða kannski sólarhringum þannig að við getum haldið okkur við dagsetninguna 15. júní sem getið er um í nefndaráliti og breytingartillögum svo að þau fyrirtæki sem falla undir þetta kerfi eins og það er sett upp geti nýtt sér möguleikana sem í því felast og brenni ekki inni á tíma.
Hv. þm. Kristján Þór Júlíusson vakti athygli á því að í sumum efnum hefði skort á undirbúning varðandi málið. Ég get tekið undir það. Ég vildi líka segja að auðvitað hefði verið æskilegra ef það hefði komið fyrr til þingsins. Ég fullyrði hins vegar að málið var unnið vel í hv. umhverfisnefnd og á góðum og eðlilegum tíma. Ég legg áherslu á að hæstv. forseti sé meðvitaður um að vegna dagsetningarinnar sem um ræðir liggur meira á því að þetta mál fái framgang í þinginu en mörg önnur mál á dagskrá.