losun gróðurhúsalofttegunda.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Vigdísi Hauksdóttur fyrir ágæta spurningu. Jú, þetta er alveg hárrétt athugað hjá þingmanninum að með því að innleiða kerfi eins og þetta hækkar kostnaðurinn við að setja upp nýja framleiðslu sem leiðir til þess að samkeppnisstaða landa sem búa við slíkt kerfi mun að þessu leytinu til versna miðað við lönd þar sem kerfið er ekki við lýði.
Hitt er aftur á móti annað mál að fyrir þá stóriðju sem er þegar til staðar eða þau fyrirtæki sem falla undir kerfið er þetta tvímælalaust hvati fyrir þau til að nýta þá takmörkuðu auðlind sem þau ráða yfir betur en ella. Það leiðir til þess að þau leita allra leiða til að menga minna en annars væri sem er gott og hjálpar til við að ná markmiðum frumvarpsins, þ.e. að minnka útblástur gróðurhúsalofttegunda.
Annað sjónarhorn í þessu er það sem kallað er upp á ensku, virðulegi forseti, „carbon credit“. Segjum til dæmis að hægt væri að nota CO 2 sem kemur úr álverum, búa til úr því bíódísil og fyrirtækin fengju „carbon credit“ á móti. Þá væru það tvímælalaust orðin mikil verðmæti fyrir þau og þar af leiðandi hvatning til að fara út í rannsóknir og þróunarstarfsemi á þessu sviði.