ráðstafanir í ríkisfjármálum.
Virðulegur forseti. Samkomulag hefur tekist um þinglok og í tengslum við það hefur samstaða tekist í efnahags- og skattanefnd um að fallið verði frá lögfestingu frumvarps um gjaldeyrishöft sem er til 2. umr. í þinginu og mun nefndin þess í stað flytja frumvarp um framlengingu heimilda til hafta til 30. september næstkomandi en stefnt verður að lögfestingu gjaldeyrishaftanna sjálfra á septemberþingi. Þá er samkomulag um að taka það frumvarp sem nú er til 2. umr., Ráðstafanir í ríkisfjármálum, til umfjöllunar í nefndinni milli 2. og 3. umr. Það er ánægjulegt að greina frá því að við þá umfjöllun verður frestað áformum um skattlagningu lífeyrissjóða í tengslum við aðgerðir við skuldavanda heimilanna en stjórnvöldum gefið tóm fram til septembermánaðar til að ná samkomulagi við lífeyrissjóðina um það atriði. Er hvort tveggja gert til að greiða fyrir þingstörfum og því að ljúka megi afgreiðslu mála á morgun og til að þingið megi hefja sumarleyfi.
Um frumvarp það um ráðstafanir í ríkisfjármálum sem liggur fyrir er það að segja að 1.–6. gr. þess frumvarps, 8. gr. og 16. gr. eru til komnar vegna nýgerðra kjarasamninga. Í tengslum við þær greinar er umhugsunarefni með hvaða hætti mál hafa þróast. Samið er um í kjarasamningum að lögfesta skuli ýmsar breytingar á skattalögum en býsna lítill tími er fyrir löggjafann að útfæra þau fyrirheit og lendir hann að sumu leyti milli steins og sleggju því að annars vegar stefnir hann samningum í tvísýnu fylgi hann ekki eftir niðurstöðu þeirra en hins vegar á hann þann kost að kasta til höndunum við útfærslu á þeim markmiðsákvæðum sem fram koma í kjarasamningunum við smíði sjálfra laganna. Nauðsynlegt er að aðilar vinnumarkaðarins hugi að þessu við kjarasamningagerð í framtíðinni því að reynslan sýnir okkur að það er mikilvægt að þingið hafi góðan tíma og gott ráðrúm til að fara yfir þau flóknu mál sem útfærsla skattkerfisbreytinga er þannig að framkvæmd þeirra megi sannarlega ná þeim markmiðum sem til er ætlast við gerð kjarasamninga.
Þá er og umhugsunarefni að í bandormi þessum fylgja ýmiss konar lagabreytingar sem hafa ekkert með kjarasamningana að gera. Ég held að minna verði á að frumvörp þessarar gerðar, svokallaðir bandormar um ráðstafanir í ríkisfjármálum, hafa notið býsna mikils svigrúms við afgreiðslu í þinginu af hálfu stjórnarliða og stjórnarandstöðu líka vegna þess að það er mikilvægt fyrir ríkisstjórn á hverjum tíma sem fer með fjárstýringarvaldið að geta náð fram margvíslegum breytingum á stuttum tíma til að hafa aga og festu í umgjörð ríkisfjármála og ná fram hlutum eins og markmiðum kjarasamninga og öðrum veigamiklum þáttum. Það fer ekki vel á því að nota þær hraðferðir til að gera breytingar á öðrum lögum sem ekki tengjast brýnum tilefnum og er rétt að slíkar fyrirætlanir komi sérstaklega inn til þingsins og fái einfaldlega þann málsmeðferðartíma sem þær þurfa, umsagnir, gestakomur og annað þess háttar.
Í 6. gr. þessa frumvarps er kannski gleðilegasta ákvæði þess sem lýtur að því að verðtryggja á ný persónuafsláttinn í landinu. Því miður varð í kjölfar efnahagshrunsins að afnema verðtryggingu persónuafsláttarins og þegar persónuafslátturinn helst óbreyttur að krónutölu í verðbólgu þýðir það að með tímanum þyngist skattbyrði hinna lægst launuðu. Það hefur verið mikið áhersluatriði ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur að verja hina lægst launuðu í skattbreytingum þeim sem óhjákvæmilegar voru vegna hruns fjármála ríkisins og þess vegna er fagnaðarefni að nú megi lögfesta á ný verðtryggingu persónuafsláttarins. Gert er ráð fyrir því að hún taki gildi 1. janúar nk. og tekur hún þá mið af verðlagsþróun frá desembermánuði 2010. Vegna álits 3. minni hluta þar sem komið er inn á þetta atriði vil ég taka fram að grundvöllurinn að þessari verðtryggingu er verðtryggingin eins og hún stóð í desember 2010, í 129,7 stigum, og ber að uppfæra hana um áramót 1. janúar 2012 á grunni 12 mánaða þróunar verðtryggingar.
Í 1. gr. frumvarpsins er gert ráð fyrir breytingum á 8. lið 3. gr. laga nr. 90/2003. Þar er fjallað um svokallaða afdráttarskatta en það eru skattar á fjármagnstekjur sem renna úr landi. Þeir voru settir á og sættu nokkurri gagnrýni af hálfu atvinnulífsins því að þeir voru taldir valda óheppilegum kostnaði fyrirtækja við lántökur erlendis vegna fjárfestinga í landinu. Auðvitað er gríðarlega brýnt að hér sé fremur greitt fyrir lánsfjármögnun erlendis frá og nýfjárfestingum í atvinnulífi og þess vegna var á það fallist að gera nauðsynlegar breytingar á löggjöfinni til að sníða af henni þessa annmarka. Það varð niðurstaða efnahags- og skattanefndar að sú útfærsla sem fram kom í 1. gr. frumvarpsins væri ekki fullnægjandi heldur þyrfti að vinna málið betur og lögfesta síðar á þessu ári enda ekki ætlunin að það tæki strax gildi. Ég ítreka að yfirlýsingar í tengslum við kjarasamninga um að koma til móts við atvinnulífið að þessu leyti eru í fullu gildi og aðeins ætlunin að vanda sem best til verka með því að fresta lögfestingu þess um sinn fram eftir þessu ári.
Í 3. gr. frumvarpsins er um að ræða tillögur um breytingar á 9. lið 31. gr. laga nr. 90/2003 sem lýtur að frádráttarbærni í tengslum við arð af eignarhlutum í öðrum fyrirtækjum. Þar var tillaga sömuleiðis í samræmi við gagnrýni atvinnulífsins á nýlegar skattbreytingar þess efnis að ekki skyldi hafa lágmarkseignarhluta í félögum 10% eins og þar var gert ráð fyrir heldur skyldi miða lágmarkið við 5% og jafnframt falla frá því að gera kröfu um að aðilar hefðu þá þegar nýtt ójafnað tap. Tillaga nefndarinnar er að ganga lengra í þessu efni en frumvarpið gerði ráð fyrir til að koma til móts við atvinnulífið og falla algerlega frá þessum mörkum um 5% eignarhald og tryggja að frádráttarbærnin sé almennt gild.
Í 2., 4. og 5. gr. er fyrst og fremst fjallað um 1. mgr. 11. gr. laganna. Þar er að finna breytingar sem lúta að nýlegum ákvæðum skattalaga sem voru sett til að koma í veg fyrir þá miklu tilhneigingu launamanna í sjálfstæðum rekstri til að stofna einkahlutafélög í því skyni að taka hluta launa sinna sem arð úr fyrirtækjunum og sleppa þannig með lægri skatta en annað fólk í landinu þarf að borga af launum sínum. Vegna þessarar tilhneigingar voru sérstök gjöld lögð á eða skattar á arðgreiðslur umfram 20% af skattalegu bókfærðu eigin fé í hlutafélögum. Þegar sú breyting kom til og sömuleiðis hækkunin á fjármagnstekjuskattinum sjálfum í 20% var hvatinn til að stofna um sig einkahlutafélög og taka laun sín út með þessum hætti mikið til úr sögunni. Atvinnulífið gagnrýndi hins vegar óspart að ákvæðin hefðu náð til stærri félaga þar sem margir eignaraðilar eru og þannig hefðu menn í slíkum félögum orðið fyrir því að þurfa að greiða í tekjuskatt, launaskatt, tiltölulega háa skattprósentu af fullkomlega eðlilegum arðgreiðslum sem með engum hætti mætti telja vera vinnulaun þeirra sem eiga hlut í fyrirtækjum. Til að koma til móts við þessi sjónarmið er það tillaga nefndarinnar að breytt verði því ákvæði laganna að undanþegnir þessari sérstöku skattlagningu séu aðeins þeir sem eigi með tengdum aðilum innan við 2% í fyrirtæki þannig að undanþegnir verði þeir aðilar sem eiga ásamt tengdum aðilum innan við 20% í viðkomandi fyrirtæki. Það þýðir í meginatriðum að fyrirtæki þar sem eru sex eigendur eða fleiri í jöfnum hlutum munu ekki verða fyrir þessum sérstöku álögum í arðútgreiðslum. Þetta hefur engin tekjuáhrif að því er heitið geti, enda eru markmið þessara lagaákvæða sannarlega ekki tekjuöflun heldur fyrst og fremst að koma í veg fyrir þá skattsniðgöngu sem einkahlutafélagavæðingin leiddi til hjá aðilum í sjálfstæðum rekstri og vegna þeirrar staðreyndar að ómögulegt er í framkvæmd fyrir ríkisskattstjóra að hafa eftirlit með því að þúsundir og aftur þúsundir aðila reikni sér á hverjum tíma eðlilegt endurgjald af launum sínum. Almenn ákvæði þurfa að koma í veg fyrir að menn nýti smugur af þessu tagi.
Í 8. gr. frumvarpsins var að finna tillögur að breytingum á auðlegðarskatti sem fólu í sér að líta ætti til stofnvirðis hlutafjár þegar metnar væru eignir manna sem greiða eiga auðlegðarskatt. Slík breyting hefði leitt til verulegs tekjutaps fyrir ríkissjóð svo hundruðum milljóna skipti, jafnvel á bilinu 500–800 millj. kr., og varð niðurstaða meiri hlutans að slík breyting mundi leiða til ójafnræðis milli þeirra sem greiða eiga auðlegðarskatt en hitt væru eðlileg sjónarmið sem fram hefðu komið af hálfu atvinnulífsins, að framkvæmdin á innheimtu auðlegðarskattsins væri óþarflega flókin í því að hún kallar á tvö framtöl og endurtekna álagningu á ári hverju. Gerir nefndin þess vegna tillögu um lítils háttar breytingar á framkvæmd auðlegðarskattsins sem lúta að því að notast áfram við skattalegt bókfært eigið fé sem grunninn en að framteljendur þurfi aðeins að fá álagningu einu sinni á ári en ekki tvisvar eins og nú er. Um leið og þetta er sagt er full ástæða til að undirstrika að auðlegðarskatturinn er tímabundin ráðstöfun í skattamálum. Gert er ráð fyrir því að hann falli úr gildi og þess vegna er enn síður ástæða til að gera breytingar í miðju kafi á tímabundnum sköttum eins og hér um ræðir enda er álagningu slíkra skatta á yfirstandandi ári að verða lokið.
Hér hafði verið gert ráð fyrir afturvirkri gildistöku eins og raunar á fleiri stöðum í frumvarpinu og er ástæða til að undirstrika að slík ákvæði eru alla jafnan óæskileg og ekki ástæða til að grípa til nema brýna nauðsyn beri til eða það feli í sér ívilnandi ákvarðanir fyrir skattgreiðendur.
Í 16. gr. frumvarpsins, sem er sú síðasta sem ég reifa og lýtur beint að kjarasamningum, er um að ræða ákvarðanir um greiðslur í VIRK Starfsendurhæfingarsjóð sem nokkrar deilur hafa staðið um. Þar er gert ráð fyrir því að greitt sé um 0,13% af launum manna og er það mat Fjármálaeftirlitsins að hlutir lífeyrissjóðanna sem lögðust gegn þessu í umsögn sinni kunni að nema um 1 milljarði á ári. Hér er verið að fylgja eftir kjarasamningum en eins og um ýmislegt annað er fyrirkomulag þessa ekki nægilega útfært, lagaumgjörðin enn óviss og skortir á um eftirlit. Því var ákvæðið um tekjuöflunina sett í stjórnarfrumvarpið til að uppfylltar væru yfirlýsingar í tengslum við gerð kjarasamninga en gert ráð fyrir að ákvæðið félli úr gildi um áramót tækist ekki að ná frekari samstöðu og samhljómi um útfærslu. Þetta er auðvitað ekki til fyrirmyndar um löggjöf en í ljósi þeirra miklu hagsmuna sem eru af því að auka í samfélaginu verulega fjármagn til endurhæfingar fólks og koma í veg fyrir að á þessum atvinnuleysistímum bíði þúsundir manna varanlega örorku af atvinnumissi er það álit meiri hlutans að réttlætanlegt sé að búa svo um hnútana og þá ekki síður til að tryggja framgang kjarasamninganna sem eru gríðarlega mikilvægur rammi um stöðugleika í efnahagslífi á komandi missirum. Nefndin gerir þó tillögu um nokkrar tæknilegar breytingar á ákvæðunum fyrst og fremst til skýringar og einföldunar í framkvæmd en gert er ráð fyrir því að allir launagreiðendur hefji greiðslu af launum í sjóðinn þegar á haustdögum og er það rökstutt með því að allir muni eiga rétt til að sækja endurhæfingu til sjóðsins.
Vík ég þá máli mínu að þeim ákvæðum frumvarpsins sem lúta ekki sérstaklega að kjarasamningum. Þar er fyrst til að taka 7. gr. frumvarpsins sem lýtur að heimildum ríkisskattstjóra til endurmats ívilnunar aftur í tímann fyrir skattgreiðendur. Þar gerir nefndin breytingar sem fyrst og fremst leiða af því að í frumvarpstextanum féll niður setning úr gildandi lögum sem Alþingi hafði sérstaklega beitt sér fyrir að setja þar inn, um rétt fólks til áfrýjunar, og þeim rétti skattgreiðenda viljum við halda til haga og færum aftur inn. Ákvæðið er almennt til bóta og lýtur m.a. að því að þegar þingið grípur til ívilnandi aðgerða í skattamálum, eins og við gerðum með því að lögfesta skattfrelsi sjúkdómatrygginga fyrr í vetur, þá sé skattyfirvöldum heimilt að horfa til þess varðandi skattframkvæmd aftur í tímann enda sé það ívilnandi fyrir borgara. Er það því tillaga nefndarinnar að ákvæðið verði að lögum.
9. og 15. gr. frumvarpsins hafa síðan verið nokkuð umdeildar, einkum sú 9. sem lýtur að skattlagningu lífeyrissjóða en sú 15. lýtur að skattlagningu fjármálafyrirtækja. Um er að ræða tekjuöflunarráðstafanir fyrir ríkissjóð vegna 6 milljarða árlegra útgjalda í tengslum við sérstakar vaxtabætur vegna aðgerðanna fyrir skuldsett heimili. Í samkomulagi frá 3. desember 2010 kemur fram að fjármálafyrirtækin og lífeyrissjóðirnir muni fjármagna þessar aðgerðir. Með hvaða hætti þeir fjármagni þær hefur hins vegar ekki verið eining um. Það hefur verið álit stjórnvalda að lífeyrissjóðunum sé óheimilt að greiða þennan kostnað með frjálsum samningum því að lögin um lífeyrissjóðina kveða mjög skýrt á um það að þeir eigi að stefna að hámarksarðsemi sjóðanna. Þrátt fyrir að þessar aðgerðir í þágu skuldsettra heimila verði til að bæta og styrkja eignasöfn lífeyrissjóðanna eru ekki lagaheimildir fyrir sjóðina til að taka þátt í þessum kostnaði nema aðgerðirnar verði þá sérstaklega ákveðnar með lögum og þá væri eðlilegast að gera það með skattlagningu sjóðanna.
Formaður Landssambands lífeyrissjóða, Arnar Sigmundsson, kom á uppstigningardag fyrir efnahags- og skattanefnd og áréttaði þar að lífeyrissjóðirnir hefðu gert ráð fyrir því að bera 1.500 millj. kr. kostnað af þessum aðgerðum en þeir væru ósáttir við form þeirrar greiðslu og hefðu ráðgert að breyta fjárhæðinni þannig að sjóðirnir bæru aðeins 40% þeirra 3,5 milljarða sem ætlunin var að taka upp í þennan 6 milljarða kostnað að þessu sinni eða 1.400 milljónir þannig að það væri sannarlega undir þeim mörkum sem lífeyrissjóðirnir hefðu ráðgert að þeir þyrftu að bera. Nú hefur hins vegar verið ákveðið að taka málið upp á milli 2. og 3. umr. og gefa stjórnvöldum og lífeyrissjóðunum tækifæri til þess í sumar þangað til við komum aftur saman í septembermánuði að ná samkomulagi um það með hvaða hætti lífeyrissjóðirnir standi skil á þessu. Eftir sem áður gerum við ráð fyrir að lögfesta að 60% kostnaðarins beri fjármálafyrirtækin í gegnum það sem er sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki, stundum kallað bankaskatturinn sem lögfestur var fyrr í vetur, og mundi sá skattur nema 0,0795% af hreinni eign þeirra.
Víkur þá sögunni að 10. gr. frumvarpsins sem lýtur að rafrænni þjónustu, stundum kallað Amazon-ákvæðið. Um er að ræða lítið ákvæði sem varðar viðskipti á veraldarvefnum sem fólk á í hér og þarf að þróa aðeins í virðisaukaskattslöggjöf okkar. Þetta er smáatriði í hinu stóra samhengi og nefndin varði engum tíma til að fá umsagnaraðila til að fjalla um það eða skoða það vegna hinna stærri mála í þessu frumvarpi og er það því tillaga okkar að fella ákvæðið brott. Nefndin mun taka þessa tillögu til skoðunar í sumar og ýmsar aðrar tillögur um lítils háttar leiðréttingar og endurbætur í virðisaukaskattslöggjöfinni og kann að koma fram með frumvarp á septemberþingi sem lýtur að því að gera þar nokkrar jákvæðar og mikilvægar breytingar vegna tækniþróunar og ýmissa annarra slíkra hluta sem snúa sérstaklega að bókum, tónlist, listamönnum og öðrum þáttum eins og þetta ákvæði gerir.
Rétt er að taka fram að við fyrstu dreifingu breytingartillagna meiri hlutans varð sá misskilningur að þessi breytingartillaga var prentuð sem breytingartillaga okkar þingmanna Samfylkingarinnar í nefndinni en það hefur verið leiðrétt og endurprentað, enda er þetta breytingartillaga meiri hlutans í heild sinni.
Í 11. gr. er á ferðinni góðkunningi Alþingis en þar er gert ráð fyrir að fresta gildistöku þeirra ákvæða um skattalega meðferð á gagnaverum sem Alþingi lögfesti sérstaklega í desember og tóku gildi 1. maí. Augljóst er að of seint er að fresta gildistöku þeirra lagaákvæða sem þegar hafa öðlast gildi og verið í gildi í hálfan annan mánuð. Ástæðan fyrir því að gildistakan varð ekki strax um áramót heldur 1. maí er einmitt sú að Alþingi vildi gefa ESA frest til að gera athugasemdir við þessi ákvæði ef stofnunin teldi tilefni til þess. Það var að mati Alþingis brýnt vegna þess neyðarástands sem hér skapaðist og vegna þeirrar miklu kreppu sem er í atvinnumálum þjóðarinnar að greiða sem mest fyrir erlendri nýfjárfestingu í landinu og að sem fæstir tálmar væru og því væri hæfilegt að gefa fjögurra mánaða frest á gildistöku ákvæðisins því að það ætti að vera nægilegur tími fyrir eftirlitsstofnunina til að koma á framfæri formlegum athugasemdum ef þær væru einhverjar. Engar formlegar athugasemdir hafa komið fram en óformlega mun stofnunin hafa komið einhverju á framfæri við fjármálaráðuneytið en það er álit okkar fulltrúa Samfylkingarinnar í efnahags- og skattanefnd að ekki sé tilefni til að bregðast við fyrr en fram koma formlegar ábendingar af hálfu ESA og ef þær koma fram verður hægt að taka efnislega afstöðu til þeirra og færa í lög með þeim hætti sem er lagt til enda örðugt að bregðast við því sem ekki er fram komið auk þess sem ákvæðið hefur þegar tekið gildi.
Í 12. gr. er verið að rýmka heimildir ferðamanna til að taka með sér bjór inn í landið. Þær tillögur valda nokkrum tekjumissi fyrir Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins eðli málsins samkvæmt því að draga mun úr verslun þar en það jafnar að ýmsu leyti heimildir í kaupum á bjór við það sem gerist í heimildum um léttvín og sterkt vín og mun að sínu leyti bæta upp að hluta tekjutapið í auknum tekjum Isavia sem rekur Leifsstöð og sér að mestu um þá sölu til ferðamanna en tekjur hafa nokkuð skerst þar vegna ráðstafana um áfengisverslun fyrr á þinginu.
Í 13. og 14. gr. frumvarpsins er að finna lítils háttar breytingar á lögum um nýsköpun. Þær eru fyrst og fremst til skýringar og ekki þess eðlis að þær breyti neinu um fjárhagsstöðu ríkisins, atvinnulífs, almennings eða um réttindi manna eða aðra slíka hluti og sér nefndin enga ástæðu til annars en að þær breytingar verði að lögum enda eru þær fyrst og fremst til skýringar og dýpkunar á þeim frumvörpum sem fyrir liggja.
Með þessari greinargerð og þeim ábendingum sem ég hef komið á framfæri um þær breytingar sem þegar er ákveðið að gerðar verði á málinu milli 2. og 3. umr., vonandi á nefndarfundi síðar í dag, læt ég lokið þessari greinargerð og legg til að samþykktu málinu að lokinni 2. umr. verði því vísað á ný til umfjöllunar hv. efnahags- og skattanefndar.