ráðstafanir í ríkisfjármálum.
Virðulegi forseti. Í upphafi framsögu sinnar minntist hv. formaður efnahags- og skattanefndar á að gert hefði verið samkomulag um að vísa málinu sem við ræðum núna til hv. efnahags- og skattanefndar til þess að fella meðal annars 9. gr. niður.
Ég er komin hér upp til að mótmæla flokksræðinu sem birtist í því samkomulagi. Á þingi ríkir flokksræði sem felst m.a. í því að flokkarnir koma sér saman um hvaða mál fara í gegn fyrir þinglok og hvaða breytingar verða gerðar á einstökum málum, eins og t.d. að fella niður 9. gr.
Flokksræðið birtist líka í því að flokkarnir koma sér saman um breytingar á málum sem hafa verið til umfjöllunar í nefndum en ekki nefndirnar sjálfar eins og ég mundi telja að væri eðlilegt, m.a. til að halda sjálfstæði löggjafans og ástunda góð vinnubrögð.
Ég vil að lokum geta þess að í nefndaráliti mínu legg ég til breytingu á 9. gr. eða að hún falli niður. Það kemur mér á óvart að flokkarnir hafi ekki samþykkt að láta þá breytingartillögu ganga til atkvæðagreiðslu og samþykkja hana. Það að þeir hafa ekki gert það sýnir enn og aftur að þegar litið er til þess hvort tillaga nær framgangi skiptir máli frá hverjum hún kemur. Með öðrum orðum, það skiptir máli hvort tillaga um breytingu kemur frá flokki eða einstaklingi.