139. löggjafarþing — 148. fundur,  10. júní 2011.

ráðstafanir í ríkisfjármálum.

824. mál
[13:32]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta efh.- og skattn. (Pétur H. Blöndal) (S):

Frú forseti. Við ræðum hér nefndarálit um frumvarp til laga um ráðstafanir í ríkisfjármálum sem er í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í tengslum við undirritun kjarasamninga o.fl.

Ég verð að segja það, frú forseti, að marga fjöruna hef ég sopið en sjaldan hef ég kynnst öðru eins frumvarpi og þessu bæði hvað varðar of mikinn hraða, það er gífurlegur hraði á þessu máli, það hefur lítið verið rætt og auk þess eru menn að blanda inn í þetta óskyldum atriðum sem ættu náttúrlega að hafa komið fyrir 1. apríl og ættu að geta fengið miklu betri umfjöllun í bæði nefndinni og þinginu en þau mál sem tengjast kjarasamningum sem skrifað var undir 5. maí. Það er kannski þess vegna sem er svona allt að því eðlilegur hraði á þessu máli. Og ekki nóg með að það sé mikill hraði heldur eru vinnubrögðin ekki alveg í samræmi við t.d. þá þingsályktun sem þingheimur stóð að, 63:0, um að bæta vinnubrögðin í Alþingi. Þetta er ekki nógu gott.

Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á núgildandi lögum sem sett voru á haustið 2009 sem 3. minni hluti varaði þá við, að innleiðing auðlegðarskatts og breytingar á lögum um tekjuskattlagningu fyrirtækja væru ekki til bóta en stjórnarmeirihlutinn skellti skollaeyrum við því á þeim tíma. Nú er verið að lagfæra og hverfa frá lögunum sem einnig var varað við að tækju gildi. Svona vinnubrögð, að Alþingi sé stöðugt og endalaust að leiðrétta lög sem eru tiltölulega nýsett, eru ólíðandi. Þetta er ekki góð gæðastjórnun á lagasetningu alla vega. Þetta er að endurtaka sig hér og mun ég fara í gegnum það.

Nokkur atriði frumvarpsins eru ótengd framangreindri yfirlýsingu en á síðu 2 í nefndaráliti 3. minni hluta er tafla sem segir þetta. Frumvarpið er 16 greinar, vegna yfirlýsingarinnar eru átta greinar en sex eru ótengdar yfirlýsingunni og svo er náttúrlega gildistakan sem gildir um hvort tveggja. Síðan eru mörg atriði og flest leiðréttingar á eldri lögum. Ég fór í gegnum það og það eru sem sagt sjö lagagreinar sem tengjast leiðréttingum á eldri lögum sem sýnir hve gæðaeftirlitið er lítið í þessum mikla hraða og asa og samráðsleysi sem einkennir kannski alla vinnslu. Svo eru gallar í frumvarpinu sjálfu, mér sýnist að nánast allar greinarnar séu með einhverjum göllum sem þurfi að leiðrétta í nefndaráliti og breytingartillögum meiri hlutans í nefndinni, þannig að þetta er mjög sjaldséð frumvarp hvað varðar villur og leiðréttingar.

Svo hefur verið nefnt hér, og framsögumaður meiri hluta nefndi það, að þetta framsal á löggjafarvaldi, sem við hljótum að gagnrýna mjög, í tengslum við kjarasamninga gefur framkvæmdarvaldið yfirlýsingar um eitthvað sem þarfnast lagasetningar frá Alþingi og þar með er Alþingi komið í þá stöðu að ef það ekki samþykkir þau atriði sem ríkisstjórnin er búin að lofa falla kjarasamningarnir. Alþingi er því komið í þá stöðu að nánast verða að samþykkja ákveðin ákvæði og löggjafarvaldið er í rauninni farið frá Alþingi til aðila vinnumarkaðarins. Þetta hef ég margoft bent á og varað við í gegnum tíðina, hvort sem ég var stjórnarþingmaður eða ekki, og þó ég sé stjórnarandstæðingur núna hlýt ég að vara við þessum vinnubrögðum.

Það sem einkennir alla þessa vinnslu er mjög lítið samráð, jafnvel þannig að stjórnarmeirihlutinn hefur bara ekki séð þau ákvæði sem um er fjallað. Samningsaðilarnir, aðilar vinnumarkaðarins, sem maður hélt að hefðu verið hafðir með í ráðum þegar verið var að setja lög sem eiga að undirbyggja yfirlýsingu sem gefin er í sambandi við kjarasamninga. Maður hélt að þeir væru hafðir með í ráðum, frú forseti. Ó, nei. Í umsögnum þeirra, bæði ASÍ og SA, koma alvarlegar ávirðingar um viss ákvæði sem hér eru og maður hélt að væru í samræmi við kjarasamninga. Til dæmis mótmælir ASÍ harðlega fjármögnun VIRK Starfshæfingarsjóðs sé aðeins tryggð í nokkra mánuði. ASÍ hefur barist fyrir því í mörg, mörg ár að koma þessu á. Ég hef nú verið á því og var kannski upphafsmaður að því á sínum tíma að starfsendurhæfing öryrkja og annað yrði skoðað betur í nefnd sem starfaði hjá forsætisráðuneytinu þegar Geir H. Haarde var forsætisráðherra einmitt um það hvernig eigi að reyna að stemma stigu við gífurlegri fjölgun öryrkja og hvernig hægt sé að virkja fólk þannig að hætt sé að horfa á það sem fólk getur ekki heldur farið að skoða það hvað hver og einn getur, að líta sem sagt frekar á getuna en vangetuna. Þetta er ekki komið lengra en það að hér er verið að ræða um fjármögnun til virkrar starfsendurhæfingar sem átti bara að vera í nokkra mánuði, og það er meira að segja sá ljóður á lagasetningunni að ákvæðið átti að taka gildi áður en fyrsta greiðslan kæmi fram. Lögin voru því fallin úr gildi áður en fyrsta greiðslan kom. Þetta eru enn ein mistökin í lagasetningunni.

Þriðji minni hluti varar við þeirri tilhneigingu ríkisstjórnarinnar, sem virðist fara vaxandi, að hunsa allt samráð við aðila sem frumvörpin varðar, hvort sem eru þingmenn eða aðilar í atvinnulífinu, og hvetur hæstv. ríkisstjórn til að hverfa af braut einræðistilburða og taka upp lýðræðislegri vinnubrögð. Það eru nefnilega einræðistilburðir að reyna að stjórna með tilskipunum án þess að hafa samráð við einn eða neinn. Þetta virðist vera vaxandi tilhneiging og mjög hættuleg í sjálfu sér ef maður skoðar einræðistilburði í öðrum löndum sem hafa svo endað sem einræðisstjórnir.

Það eru nokkur atriði til bóta, t.d. var það stefna Sjálfstæðisflokksins lengi vel að hafa persónuafsláttinn verðtryggðan, hann er trygging lágtekjufólks fyrir því að borga ekki of mikla skatta. Hann var í lögum verðtryggður en það afnam hæstv. vinstri stjórn á fyrstu dögum sínum og hann hefur síðan verið óverðtryggður, hækkaði reyndar um 2 þúsund kall ein áramótin en síðan ekki söguna meir og ætti núna að vera 5.002 kr. hærri ef hann hefði verið verðtryggður frá áramótum 2008/2009. Svo mundi hann að sjálfsögðu hækka um næstu áramót en gert er ráð fyrir að þá hækki hann fyrst.

Það munar heilmikið um 5.002 kr. hjá þeim sem lítið hafa, frú forseti. Það má vel vera að einhverja muni ekkert um það en margt fólk munar um það og þetta eru 60 þús. kr. á ári sem menn hefðu haft hærri tekjur út af persónuafslættinum, þ.e. þeir sem ná þeim tekjum að borga skatt sem eru flestir vegna þess að skattleysismörkin hafa farið lækkandi. Þetta styðjum við. En tillögurnar eins og þær komu frá ríkisstjórninni eru gallaðar og nefndin þarf greinilega að laga þetta vegna þess að eins og þetta kemur frá ríkisstjórninni þá stendur þar, með leyfi forseta:

„Persónuafsláttur skal í upphafi hvers árs taka breytingu í réttu hlutfalli við mismun á vísitölu neysluverðs við upphaf og lok næstliðins tólf mánaða tímabils.“

Tólf mánaða tímabilið er jú tólf mánaða tímabil og á því tímabili eru 12 vísitölur og hækkun frá fyrstu vísitölunni til annarrar eru ekki nema 11 hækkanir þannig að það eru ekki nema 11 hækkanir á þessu tímabili. Þetta ákvæði er bara rangt orðað. Það kemur væntanlega fram breytingartillaga um að gera þetta rétt en þetta er eitt af mörgum dæmum um galla.

Í tveimur greinum eru lífeyrissjóðirnir skattlagðir, þ.e. í 9. gr. og 16. gr. Nú er það svo að lífeyrissjóðirnir eiga enga eign, það er alger misskilningur að það sé einhver eign í lífeyrissjóðunum vegna þess að lífeyrissjóðirnir eru þannig hannaðir að eignin sem þeir sitja með er til að mæta skuldbindingum og skuldbindingin á að vera jafnhá eigninni þannig að nettóeignin er núll. Þannig eru þeir hannaðir og því er fráleitt að fara að leggja einhvern skatt á eignir lífeyrissjóða.

Síðan gerist það þegar lífeyrissjóðir eru skattlagðir á einhvern máta vegna þess að eignir og skuldir standast á — hér er ég að fá, frú forseti, nýjustu breytingartillögurnar þannig að maður getur kannski farið að ræða málið sem sýnir hve málin eru vel undirbúin eða hitt þó heldur — að ef einhverjar skuldbindingar eru settar með lögum á lífeyrissjóðina, skattalögum, aukin skattlagning eða eitthvað eins og 9. og 16. gr. gera ráð fyrir, þurfa almennu sjóðirnir að skerða lífeyrinn til að mæta því eða hækka iðgjald eða hækka ellilífeyrisaldurinn. Það eru þessar þrjár leiðir til að mæta svoleiðis áföllum. Þetta kemur sem sagt niður á lífeyrisþegum þeirra, örorkulífeyrisþegum og ellilífeyrisþegum. En opinberu sjóðirnir lenda ekki í neinu, sjóðfélagar þeirra eiga tryggð réttindi samkvæmt lögum þannig að það breytist ekkert hjá þeim nema það að atvinnurekandinn, þ.e. ríkið, þarf að borga hærra iðgjald inn í þennan sjóð og til þess þarf ríkið meiri skatta. Ef lífeyrissjóðirnir eru á einhvern máta skattaðir eða lenda í einhverju áfalli gerist það að sjóðfélagarnir borga það í almennu sjóðunum og borga auk þess hærri skatt vegna hækkaðs iðgjalds til opinberu sjóðanna þannig að áfallið verður tvöfalt hjá sjóðfélögum almenningssjóðanna.

Hrunið kom illa niður á lífeyrissjóðunum. Það snertir Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins ekki neitt. Það eina sem gerist er að ríkið þarf að hækka iðgjaldið og það er meira að segja talað um að í A-deildinni þurfi að hækka iðgjaldið um heil 4% af launum ríkisstarfsmanna, að hluta til út af hruninu, og ríkisstarfsmenn halda sínum réttindum að fullu. En almennu sjóðirnir hafa þurft að skerða réttindi, í sumum tilfellum líka réttindi sem höfðu hækkað áður en ekki í öllum tilfellum. Sérhvert áfall eða skattlagning á lífeyrissjóði kemur niður á almennu sjóðunum eingöngu, sjóðfélögum þeirra og ríkissjóði sem nær í peningana til sjóðfélaga almennu sjóðanna. Menn þurfa að vera mjög varkárir og það má eiginlega ekki skattleggja lífeyrissjóðina. Það er farið í gegnum það allt saman í nefndarálitinu.

Ég ætla aðeins að ræða um VIRK Starfsendurhæfingarsjóð sem stendur til að halda áfram. Öryrkjum hefur fjölgað gífurlega. Á síðustu 20 árum, frá 1990–2010, hefur þeim fjölgað úr 4.600 í 14.700, það er rúmlega þreföldun. Þeim hefur fjölgað úr 3,9% í 7,7% í aldurshópnum 16–66 ára, þeim hópi sem er á vinnumarkaði. Það hefur nánast tvöfaldast sem hlutfall af mannfjölda á þessum 10 árum. Það má vel vera að einhverjir líti á það sem eðlilega þróun, að það sé þróun sem sé í takt við þróun í öðrum löndum, en ég tel það ekki vera. Ég tel að það séu mjög alvarleg örlög að verða öryrki og að menn eigi ekki að horfa á svona fjölgun án þess að reyna að átta sig á því af hverju hún stafar. Starfsendurhæfingin hefur verið í skötulíki hér á landi og ég vil endilega að menn setji kraft í að endurhæfa fólk þannig að það geti orðið virkir þátttakendur í atvinnulífinu aftur og minnki byrðina á lífeyrissjóðum, Tryggingastofnun og ríkinu. Örorka minnkar auk þess skatttekjur ríkisins en það er kannski alvarlegast hvað hún er mikill mannlegur harmleikur fyrir þann sem lendir í því og það endar oft og tíðum í einangrun, sem ég hef því miður séð allt of mikið af.

Ég er mjög hlynntur því að auka virka starfsendurhæfingu en það má ekki gerast með þeim hætti sem hér er lagt til, frú forseti. Það má ekki gerast með því að skattleggja iðgjöldin í lífeyrissjóðina vegna þess að það kemur bara niður á almenningssjóðunum. Þeir borga þá tvöfalt fyrir það því að þeir þurfa líka að borga iðgjald ríkisins í opinberu sjóðina. Ég hefði viljað sjá allt aðra lausn.

Mín hugmynd er sú að þegar maður endurhæfist fái aðilinn sem endurhæfir hann þriggja eða fimm ára lífeyrisgreiðslur til mannsins sem sparast ef sá sem hann endurhæfir fer aftur að vinna. Þá sparast lífeyrisgreiðslur og sá sem endurhæfir má fá þriggja eða fimm ára lífeyrisgreiðslur til mannsins frá Tryggingastofnun og frá lífeyrissjóðum. (Gripið fram í.) Þá verður til heilmikill hvati og fjármögnun fyrir kerfið til að endurhæfa. Enn fremur gætu ríki og sveitarfélög endurgreitt þá skatta sem maðurinn borgar eftir að hann er endurhæfður í kannski þrjú eða fimm ár — þetta er reikningsdæmi — vegna þess að þeir skattar kæmu ekki ella. Þeir kæmu auðvitað sem skattar af bótum en þær bætur eru borgaðar af þessum sömu aðilum, ríki og sveitarfélögum. Ég mundi vilja sjá fjármögnunina allt öðruvísi og vildi gjarnan að félagsmálanefnd sem málið heyrir sennilega undir fari að setja lög um Starfsendurhæfingarsjóð og gæti þá kannað hvað mætti endurgreiða mikið af lífeyri og sköttum og til hve langs tíma.

Í 1. gr. frumvarpsins er gert ráð fyrir því að taka til baka ákveðnar breytingar. Nefndin gerir ráð fyrir því að þurrka sjóðinn út og skoða seinna hvernig skattlagningu vaxta sem greiddir eru til útlanda verði háttað, en það var atriði sem við sjálfstæðismenn í hv. efnahags- og skattanefnd vöruðum alvarlega við á sínum tíma. Við bentum á að það væru Íslendingar sem borguðu þennan skatt á endanum en ekki móttakendur skattsins sem eru útlendingar. Ég legg til að hv. nefnd skoði það sérstaklega.

Í 2., 4. og 5. gr. er gerð tilraun til að leiðrétta og skýra nánar atriði sem lögfest voru með lögum nr. 128/2009 — það eru enn ein lögin, splunkuný. Í lögunum er ætlað að koma í veg fyrir misnotkun sem fólst í því að sjálfstætt starfandi menn stofnuðu einkahlutafélög um reksturinn og greiddu sér hluta tekna sinna sem arð og greiddu þá tekjuskatt fyrirtækja sem áður var 15% en er núna 20%, og fjármagnstekjuskatt sem áður var 10% en nú 20% af því sem eftir var. Þeir greiddu sér sem sagt lág laun og tóku út arð. Auðvitað áttu menn að greiða sér tekjur eins og þeir hefðu unnið hjá fyrirtækinu. Það er kannski fyrsti gallinn að skattyfirvöld hafa gefist upp við að beita ákvæði í skattalögum um reiknað endurgjald. En núna þegar þessi mismunur er orðinn miklu minni vegna þess hve skattarnir hafa hækkað, bæði á hagnað fyrirtækja og á fjármagnstekjur, held ég að það sé miklu minni þörf á slíkum skattaæfingum eða skattatilfæringum til að koma í veg fyrir þá misnotkun. Menn ættu að skoða hvort ávinningurinn sé ekki orðinn það lítill að það taki því ekki að skemma allt skattkerfið fyrir það. En auðvitað er slæmt þegar skatturinn getur ekki notað ákvæði skattalaga um reiknað endurgjald eins og hann á að gera.

Í 8. gr. frumvarpsins lagði ríkisstjórnin til að miða ákvörðun auðlegðarskatts við raunvirði hlutabréfa, þ.e. að í stað þess að miða ákvörðun auðlegðarskatts við stofnverð hlutabréfa, sem fælist þá í að reiknað væri út hvert bókfært virði eigin fjár er, það yrði gert fyrst við álagningu með eins konar mati og síðan ári seinna þegar álagning á fyrirtækin liggur fyrir og skattalegt uppgjör þeirra, þ.e. innlendra fyrirtækja, breytti ríkisstjórnin því þannig að tekið yrði stofnverð hlutabréfa. Þá sáu margir menn í þinginu að það gat þýtt að sumir borguðu mjög lítinn auðlegðarskatt vegna þess að það er lítið samræmi á milli stofnbréfs hlutabréfa og eiginfjár hlutafélagsins.

Nefndin gerði tillögu um að í stað þess að miða við stofnverð hlutabréfa á sama tíma og aðrar eignir og skuldir mannsins yrði miðað við stofnverð hlutabréfa árið áður. Það kemur reyndar ekki til nema einu sinni en sýnir hvað flækjustigið er orðið mikið. Um eða eftir næstu áramót þegar menn telja fram munu þeir taka eignir og skuldir í árslok 2011, yfirstandandi árs, en hlutabréfaeign viðkomandi í ársbyrjun eða árslok 2010, þ.e. eigið fé þeirra hlutabréfa sem maðurinn á.

Þá komast menn í klemmu sem felst í því að menn geta tekið lán á þessu ári til að kaupa hlutabréf í fyrirtækjum sem eru með lítið eigið fé í ársbyrjun 2010 eða sem eru jafnvel óstofnuð. Þeir geta stofnað hlutafélag um það. Þar sem lánið lækkar eignarstofninn um áramótin í árslok 2011 en hlutabréfin eru lítils sem einskis virði í ársbyrjun 2010 og jafnvel ekki til, geta menn með þessu nánast ráðið því hvað þeir borga mikinn skatt eða ráða stofninum. Ég orða það þannig að þeir borga auðlegðarskatt sem nenna því. Ég tel að það eigi ekki að vera hægt og hef bent á það. Ég benti á það í nefndaráliti okkar en hef reyndar ekki neina sniðuga lausn á því aðra en þá að hafa kerfið eins og það hefur verið, að fyrst sé talið fram mat á eignunum í árslok 2011 og síðan í árslok 2012 við framtal 2013 og við síðasta framtalið verði eignin skoðuð. Það er ekki verjandi að meta eignir og skuldir á mismunandi tíma af því að það er svo auðvelt að flytja eignir á einum tímapunkti yfir í skuldir á öðrum tímapunkti.

Það er ekki mjög langur tími til stefnu en auðvitað gæti nefndin tekið málið upp aftur í haust og komið með leiðréttingu á þessum leiðréttingum. Það væri þá í takt við allt annað í störfum þessarar hæstv. ríkisstjórnar og stjórnarmeirihluta.

Gildistökuákvæðin eru mjög ruglingskennd. Til dæmis átti fyrsta greiðslan til VIRK að vera í janúar en ákvæðið átti að falla úr gildi í desember 2011 þannig að lögin féllu úr gildi áður en fyrsta greiðslan kom inn. Ég reikna með að þessar breytingar sem ég fékk áðan séu lagfæring á þessu en á þetta var bent í nefndaráliti og er mjög neyðarlegt að svoleiðis mistök verði.

Mig langar rétt aðeins að ræða allar þær ráðstafanir sem þessi félagshyggjustjórn er að gera — þetta kemur frá mínu brjósti — og margar af þeim eru hugsaðar til að bæta stöðu skuldara. Skuldarar og vandamál þeirra hafa löngum verið umræðuefni á Íslandi en alveg sérstaklega nú undanfarið. Það er búið að setja 33 milljarða í Íbúðalánasjóð. Af því voru að mig minnir 19 milljarðar ætlaðir fyrir 110%-leiðina til að lækka skuldir skuldara. Síðan sýnist mér að meiri hlutinn sé að hverfa frá 9. gr. frumvarpsins og þá vantar að minnir mig 3 milljarða eða 3,5 milljarða inn í tekjurnar hjá ríkissjóði, ég ábyrgist ekki alveg tölurnar. Þar þarf ríkissjóður eða lífeyrissjóðirnir aftur að borga, eða einhver þarf að borga niðurfærslu á vöxtum, lækka vexti almennt, reyndar að teknu tilliti til eigna en án tillits til tekna. Hátekjufólk getur því fengið vaxtaniðurgreiðslu og fær hana sjálfvirkt þannig að … (Gripið fram í.) — Heyr, heyr, er kallað úti í sal og það má vel vera að einhver gleðjist yfir því — en 110%-leiðin kemur mjög illa út félagslega. Á sama tíma fjölgar í hópi leigjenda í þjóðfélaginu vegna þess að fólk er að missa húsnæði sitt og ungt fólk kaupir ekki húsnæði. Það hefur fjölgað mjög í hópi leigjenda og leigan hefur hækkað. Leigan er iðulega verðtryggð. Það er ekkert gert fyrir þennan hóp, ekki neitt. Það veit enginn hvað þessi hópur er stór. Það veit enginn neitt yfirleitt um stöðu heimilanna þó að hv. efnahags- og skattanefnd hafi tvær tillögur í farteski sínu varðandi könnun á stöðu heimilanna sem ekki er búið að ganga frá.

Mér reiknast svo til að það séu leigjendur á um 24 þúsund heimilum, sennilega er það komið í 25 þúsund. Það er ekkert gert fyrir það fólk. Hæstv. velferðarstjórn gerir ekkert fyrir leigjendur á Íslandi. En hún er stöðugt að smyrja hjá skuldurum og meira að segja þeim sem eru með háar tekjur og þurfa lítið á því að halda. Eins er mjög lítið gert fyrir atvinnulausa.

Ég hef líka nefnt að sparifjáreigendur, þeir sem hafa frestað neyslu, búa við neikvæða ávöxtun í dag og sú ávöxtun er skattlögð með vaxandi sköttum. Það er ekkert verið að hugsa um þann hóp fólks enda er kannski langbest í hugum margra að hann sé ekki til. Sparifjáreigendur eru nefnilega kallaðir fjármagnseigendur og eru ljótt fólk í augum margra þingmanna, þeir sem hafa frestað neyslu og þeir sem sýna ráðdeild og sparnað í heimilishaldi sínu. En það er kannski markmiðið að þeir séu ekki lengur til og fari að eyða eins og hinir.

Mér finnst það með ólíkindum og ef þessi velferðarríkisstjórn heldur svona áfram liggur við að ég fari að breytast í kommúnista vegna þess að ríkisstjórnin er svo ófélagsleg í vinnubrögðum sínum að lækka skuldir hjá fólki sem ekki þarf á því að halda og gleymir leigjendum gersamlega. Mér finnst það vera félagslega ófært, frú forseti. Hér erum við að ræða atriði sem byggja á samningum og það virðist vera að aðilar vinnumarkaðarins, ASÍ, hugsi eins. Þeir hugsa bara um skuldara, þeir hugsa ekkert um leigjendur. Ég reikna með því að vaxandi fjöldi manns hjá ASÍ séu einmitt leigjendur, sérstaklega ungt fólk, því að það hefur lítið verið keypt af íbúðum síðustu fjögur, fimm ár. Það vantar sennilega fjóra eða fimm árganga inn í eignaríbúðakerfið og það fólk verður að leigja eða búa heima hjá foreldrum sínum. Mér finnst þessi hæstv. velferðarríkisstjórn ekki gera neitt í málum leigjenda og hún er mjög ófélagsleg.