139. löggjafarþing — 148. fundur,  10. júní 2011.

ráðstafanir í ríkisfjármálum.

824. mál
[16:54]
Horfa

Tryggvi Þór Herbertsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Í þessari grein er ákvörðuð fjármögnun handa VIRK Starfsendurhæfingarsjóð. Þetta held ég að sé hið besta mál en aftur á móti höfum við þingmenn í efnahags- og skattanefnd og aðrir þingmenn ekki fengið neinar sérstakar útskýringar á því hvaða árangri á að ná með þessu, fyrir utan almenn markmið, og hvernig eigi að verja því fé sem hér fer inn og hvernig menn sjái þessi mál yfirleitt fyrir sér í framtíðinni. Þegar spurt er út í þetta eru öll svör mjög loðin.

Þar sem þetta er hið besta mál og gæti hugsanlega lækkað örorkugreiðslur í framtíðinni mun ég ekki standa í vegi fyrir því en get ekki greitt því atkvæði mitt vegna þess að málið er frekar loðið.