139. löggjafarþing — 149. fundur,  10. júní 2011.

álit Eftirlitsstofnunar EFTA um Icesave.

[17:37]
Horfa

Margrét Tryggvadóttir (Hr):

Forseti. Ég vil byrja á að þakka ráðherranum fyrir greinargóðar upplýsingar. Ég er sammála túlkun ráðherrans, kannski loksins að við erum sammála um eitthvað. Ég held að það sé gífurlega mikilvægt að halda í samstöðuna sem myndaðist í viðbrögðum Íslands við málinu og halda áfram því góða samstarfi við þau félagasamtök sem hafa unnið gríðarlegt starf. Það er brýnt að hafa þau áfram með í ráðum.

Nú þurfum við öll að standa saman og standa í lappirnar. Þetta mál var tekið af þinginu eftir afgreiðslu og fór í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þetta er sú leið sem þjóðin valdi. Ég er reyndar sammála þjóðinni en nú þurfum við öll að standa sem einn maður og klára þetta mál. Ég er alveg viss um að við gerum það með sóma.