139. löggjafarþing — 149. fundur,  10. júní 2011.

rannsókn á aðdraganda og orsökum erfiðleika og falls sparisjóðanna.

866. mál
[20:32]
Horfa

Eygló Harðardóttir (F):

Virðulegi forseti. Ímynd sparisjóðanna er að þetta séu vinalegustu viðskiptabankarnir, þeir sem eru í næsta nágrenni við okkur, þau fjármálafyrirtæki sem eru í hefðbundinni viðskiptabankastarfsemi, íhaldssamastir. Þess vegna vekur það upp miklar spurningar þegar við gerum okkur grein fyrir því að fyrsta fjármálafyrirtækið sem fór í þrot í aðdraganda hrunsins var Sparisjóður Mýrasýslu. Í framhaldinu þekkjum við öll hvernig hver sparisjóðurinn á fætur öðrum hefur þurft að hætta rekstri, verið yfirtekinn af ríkinu eða þurft að fara í gegnum fjárhagslega endurskipulagningu. Eftir stóðu að mig minnir tveir sparisjóðir sem lifðu af þessi ósköp að mestu og héldu sínu.

Markmiðið með þessari rannsókn er að bregðast við þessu, bregðast líka við þeim ábendingum sem komu fram í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis þar sem fram kemur að þeir telja mikla ástæðu til að rannsaka sérstaklega aðdraganda og orsakir hruns sparisjóðakerfisins. Eins og kom hérna fram í máli hv. þm. Péturs Blöndals tengist það mjög náið einu stærsta gjaldþroti í heimi, gjaldþroti Kaupþings. Ég held að ég hafi síðast séð gjaldþrot Kaupþings á listanum yfir fimm stærstu gjaldþrot í heimi.

Við gerum okkur grein fyrir því að þessar heimilislegu, litlu og vinalegu stofnanir sem hafa notið mikillar jákvæðni og velvildar í íslensku samfélagi voru orðnar að stóru neti og spilaborgin orðin stór. Ég tel að þær þúsundir stofnfjáreigenda sem lögðu inn fé, treystu þessum fyrirtækjum og stjórnendum þeirra hafi kannski engan veginn gert sér grein fyrir því hvað þetta var orðið mikið. Það sem er svo brýnt með þessari rannsókn er að fá fram upplýsingar um hvað gerðist, þúsundir einstaklinga kalla eftir svörum, fólk sem berst í bökkum við að halda heimilum sínum, landinu sínu, hefur jafnvel þegar misst það. Fólk þarf að fá að minnsta kosti svör við því hvað gerðist. Hvernig var hægt að búa til svona stóra loftbólu? Fyrir okkur er mikilvægt að fá þessar upplýsingar, að læra, skilja og fá svör við því hver bar ábyrgð á þessu. Það er mín von hvað þessa rannsókn varðar.

Hv. þm. Pétur Blöndal talaði um mikilvægi þess að fara nægilega langt aftur í tímann. Ég tek svo sannarlega undir það. Það var eitt af því sem ég lagði áherslu á í því frumvarpi sem ég lagði fram um rannsókn á sparisjóðunum og í þeirri vinnu um þessa þingsályktunartillögu sem ég hef verið svo heppin að fá að taka þátt í í allsherjarnefnd. Að mínu mati nær þetta hugsanlega ekki bara aftur til þess tíma sem ályktun þingmannanefndarinnar leggur til eða eins og hv. þingmaður talar um heldur jafnvel enn þá lengra. Hlutafélagavæðingin byrjaði í litlum skrefum og þetta var ákveðinn lokahnykkur sem hv. þingmaður talaði um að mínu mati.

Ég tel líka mikilvægt að rannsóknarnefndin sjálf fái svigrúm til að meta hversu langt aftur hún þarf að fara. Við leggjum áherslu á að hún fari að lágmarki þetta langt aftur, en ef hún telur nauðsynlegt að fara lengra er það hennar að meta það.

Ég tel líka mjög brýnt að hún horfi til þeirrar greinargerðar sem fylgdi þingsályktunartillögunni þegar hún kom frá allsherjarnefnd þar sem fram kemur að það er ekki bara ætlunin að hún stoppi við hrunið sjálft eða ákveðinn tímapunkt sem við höfum talað um, október 2008, heldur fari enn þá lengra aftur. Sparisjóðirnir hrundu ekki allir samhliða heldur hefur það tekið lengri tíma og ýmsar spurningar hafa vaknað upp um það hvernig menn fóru með eignir sparisjóðanna eftir að þeir voru komnir undir mjög náið eftirlit Fjármálaeftirlitsins í framhaldi af hruninu.

Ég fagna því virkilega að við séum að fara að klára þetta mál og hvet hæstv. forseta til að fara mjög hratt í að skipa þessa rannsóknarnefnd þó að ég viti vitanlega að hún muni vanda sig við að velja góða einstaklinga til að sinna þessu mikilvæga verkefni.