rannsókn á aðdraganda og orsökum erfiðleika og falls sparisjóðanna.
Forseti. Ég fagna því einlæglega að þingið ætli nú að afgreiða þingsályktunartillögu um rannsókn á aðdraganda og orsökum erfiðleika og falls sparisjóðanna.
Hér á Íslandi bjó þjóð sem fór fram úr sér og bjó til loftbólupeninga eins og talað hefur verið um í fyrri ræðum, peninga sem voru í raun og veru aldrei til. Hún eyddi þeim samt og það er eiginlega að koma í bakið á okkur núna. Hluti af þessum vanda og erfiðleikum var græðgisvæðing sparisjóðanna, sem hægt er að kalla svo, þar sem einhverjir menn virðast hafa notað sparisjóðina sem einkasparibauka.
Mér finnst mjög brýnt að klára að skoða málið og ég hefði viljað vera með aðra tillögu hér um rannsókn á einkavæðingu á bönkunum þar sem við mundum skoða það ferli allt saman. Ég held að við náum okkur ekki upp úr þessu fyrr en við höfum skoðað þessi mál alveg í þaula og rannsakað þau. Það getur vel verið að háskólasamfélagið taki við sér og skoði þetta.
Nú eftir hrunið er verulega breytt landslag á fjármálamarkaði og ég sakna sparisjóðanna eins og þeir voru fyrir háeffinguna þar sem þetta voru innlánsstofnanir. Þeir voru ekki í áhættufjárfestingum og voru kallaðir hornsteinn í héraði. Það sem gerir mál sparisjóðanna kannski enn þá sorglegra og sérstakara en fall bankanna eru gríðarlegar lántökur sem margir stofnfjáreigendur fóru í í góðri trú. Ég held að það sé alveg sérstakt rannsóknarefni hvernig það allt saman fór.