139. löggjafarþing — 150. fundur,  10. júní 2011.

stjórn fiskveiða.

826. mál
[22:57]
Horfa

Frsm. meiri hluta sjútv.- og landbn. (Lilja Rafney Magnúsdóttir) (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Um þennan þátt málsins hefur verið mikill ágreiningur, ekki bara við vinnslu þessa frumvarps heldur til fjölda ára. Hann hefur verið á milli útgerðaraðila, innan Landssambands íslenskra útvegsmanna, hjá þeim sem stunda uppsjávarveiðar og þeim sem stunda bolfiskveiðar. Það hefur orðið niðurstaða innan Landssambands íslenskra útvegsmanna að jöfnun verði þarna á og var samþykkt á aðalfundi Landssambands íslenskra útvegsmanna að þeir sem eru í uppsjávargreinum greiði í samfélagslega potta til jafns við þá sem eru á bolfiskveiðum.

LÍÚ hefur unnið að þessu máli og var gott samkomulag í sáttanefndinni svokölluðu um að fara yrði þessa leið. Vinnsla frumvarpsins var í samráði við þá hagsmunaaðila sem áður hafa komið að málinu.