139. löggjafarþing — 150. fundur,  10. júní 2011.

stjórn fiskveiða.

826. mál
[23:13]
Horfa

Árni Johnsen (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. formaður sjávarútvegsnefndar getur verið með hrat hér á menn persónulega, lögfræðimenntaða menn eða aðra menn eins og mig sem er úr sjávarplássi og er alinn upp til sjós og á sjó. Það þýðir ekkert að vera með svona bullumblambur eins og þeir nota á Vestfjörðum um slíkt orðfæri. (Gripið fram í.) Það gengur ekki að leggja fram vanbúið og óboðlegt frumvarp eins og hér er gert í dag. (ÞBack: Búið að laga það.) (Gripið fram í: Hörmungarfrumvarp.) Er nú þessi varaforseti farin að [Hlátur í þingsal.] glutra líka? Þá er nú fokið í flest skjól.

Sáttaleiðin sem formaður sjávarútvegsnefndar vék að áðan, það er skömm að nefna sáttanefndina í sambandi við þetta frumvarp því að það er allt vanvirt sem að var stefnt í áliti sáttanefndarinnar sem um 20 aðilar undir stjórn hæstv. ráðherra sem hér veifar höndum, (Forseti hringir.) vann. (Gripið fram í.) En það hefur ekkert verið gert nema að setja það í súr og í súr og í meira súr. (HHj: Ekki vera svona súr.) (Forseti hringir.) Og glottið á hv. þm. Helga Hjörvar sýnir að það er eitthvað mikið að í þessu. (Forseti hringir.) [Hlátur í þingsal.] Það er eitthvað mikið að í þessu því að þar er ekki glott nema illt sé á ferðinni.