139. löggjafarþing — 154. fundur,  11. júní 2011.

þingfrestun.

[19:37]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Ég þakka hv. 4. þm. Norðvest. Gunnari Braga Sveinssyni fyrir hlý orð í minn garð og varaforsetanna og sömuleiðis góðar óskir í minn garð og fjölskyldu minnar. Ég þakka hv. þingmönnum fyrir að taka undir þau orð með því að rísa úr sætum.

Ég endurtek þakkir mínar og óskir til hv. þingmanna og alls starfsfólks Alþingis.